Óheill. Lýkur efst á bl. 139r. Þar á eftir virðist upprunalegur texti blaðsins hafa verið skafinn burt og nöfnum og bókahnútum bætt við á uppskafninginn.
Bl. 1v: Blekteikning af Kristi á krossinum og María og Jóhannes standa undir.
Bl. 2r: Blekteikning af konungi í hásæti með öxi og valdaepli. Hásætið, skammelið og ramminn eru skreytt með kynjaskepnum og dýrum.
Bl. 2v: Blekteikning af konungi í hásæti með veldissprota og valdaepli. Hásætið, skammelið og ramminn eru skreytt með kynjaskepnum og dýrum.
Upphafsstafir í ýmsum litum og með myndum á bl. 4v, 9v, 30r, 53v, 58v, 80r og 86v.
Upphafsstafir í ýmsum litum.
Rauðritaðar fyrirsagnir.
Bókahnútar á bl. 139r-v.
Á spássíum eru athugasemdir, nöfn og þess háttar.
Tímasett til um 1530 (sjá ONPRegistre , bls. 445), en til 1500-1550 í Katalog I , bls. 428.
Árni Magnússon fékk handritið hjá Sigurði Sigurðssyni landskrifara (sbr. seðil). Áður átti það Guðmundur Eyjólfsson á Melum á Kjalarnesi (sbr. seðil), en auk þess er nafn sonar hans Einars Eyjólfssonar að finna á bl. 45 og 70. Aftast segist Ketill Guðmundsson eiga handritið með réttu og einnig virðist Sigurður Valdason hafa verið eigandi (sbr. bl. 26r).
Nafn í handriti: Brandur Einarsson (bl. 42r).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 9. desember 1974.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í nóvember 1973. Eldra band liggur hjá í öskju.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.