Skráningarfærsla handrits
AM 137 4to
Handrit hefur ekki verið myndað stafrænt
Lög; Ísland, 1440-1480
Innihald
Bæn
„Bæn fyrir dómendur“
„Almáttugi eilífi Guð og himneski faðir …“
„… um allar aldir alda. Amen.“
Skrifuð 1637 (sbr. neðst á bl. 1v).
Fjármark Helga Halldórssonar í Miðhúsum
Einnig nöfn, pennakrot o.þ.h.
Dies mala Illir dagar
„Dies mala“
„Illir d[agar]“
„Tveir eru þeir dagar …“
Um þá óheilladaga mánaðarins þegar ekki er hægt að stunda lækningar.
Réttarbætur Lagaákvæði Lagaformálar
„Hákon meður Guðs náð …“
„… sé til lögmanna stefnt.“
Þ.á m. Gamli sáttmáli (bl. 3v-4r) og Stefna til örvarþings á Grafarbakka (bl. 11v).
Jónsbók
Kristinréttur Árna biskups
„Ala skal barn hvert sem borið verður …“
„… og liggur iii marka sekt við hver er eigi lýkur.“
Gamli sáttmáli
„Í nafni föðurs og sonar og heilags anda …“
Viðbót frá ca 1500.
Um fátækraskatt Um tíundargjöld
Vantar aftan af texta.
Viðbót frá ca 1500.
Um landbúnað
Viðbót frá 1637.
Lýsing á handriti
Handritið hefur síðar verið blaðsíðumerkt 1-202.
Handritið er mikið skemmt af völdum raka og víða fúið, einkum fremst og aftast.
- Eindálka.
- Leturflötur er ca 143-160 mm x 105-112 mm.
- Línufjöldi er að jafnaði 29.
- Upphafsstafir víða dregnir út úr leturfleti.
- Gatað fyrir línum.
Óþekktur skrifari/skrifarar, léttiskrift.
Leifar af upphafsstöfum í ýmsum litum.
Leifar af rauðrituðum fyrirsögnum.
Pennaflúr með laufteinungum er víða undir síðustu orðum á síðu (sbr. bl. 18r, 21v, 44r, 60r, 61r, 71r, 97r).
- Bl. 101r:13-31-101v:1-25 viðbætur frá ca 1500 (sbr. ONPRegistre, bls. 445). Bl. 101r tímasett til 15. aldar í Katalog I, bls. 426, en bl. 101v til ca 1500.
- Bl. 1 og aðrar viðbætur á bl. 101v frá 1637 (sbr. Katalog I, bls. 426)
- Á spássíu bl. 1v er ákall til „sancta virgo fenenna“.
- Aðrar spássíugreinar eru á bl. 12r, 14v, 20v, 29r, 30r, 33v, 35r-v, 35bisr, 41v, 43r, 45r, 46r, 49r, 53v, 55r, 56r-57r, 62v-63r, 64v, 67r, 69r-v, 80v, 96r.
- Talnaraðir á bl. 9r, 17r-v.
Band frá júlí 1975 (233 mm x 190 mm x 55 mm). Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk, leður á kili og hornum. Saumað og límt á móttök. Saurblöð tilheyra bandi. Handritið liggur í öskju ásamt gömlu bandi.
Gamalt band frá árunum 1772-1780. Pappaspjöld klædd handgerðum pappír. Blár safnmarksmiði á kili.
Tveir fastir seðlar fremst með hendi Árna Magnússonar:
- Seðill (160 mm x 105 mm) frá um 1708: „Þessi lögbók er Katrínar Torfadóttur í Bæ í Flóa, léð mér 1704. Á ég henni aftur að skila. Þar í er árstökurettarbótin. Nu 1708. 000000 ég hana.“
- Smáseðill (130 mm x 60 mm) frá um 1710: „Réttarbætur nokkrar. Jónsbók. Kristinréttur Árna biskups. Bókin er m000 komin til mín frá Katrínu Torfadóttur.“
Laus seðill frá Kaupmannahöfn með upplýsingum um forvörslu.
Uppruni og ferill
Handritið er skrifað á Íslandi. Meginhluti þess (bl. 2v-101r:12) er tímasettur til ca 1440-1480 (sbr. ONPRegistre, bls. 445), en til ca 1400 í Katalog I, bls. 426). Um síðari tíma viðbætur sjá að ofan.
Árni Magnússon fékk handritið frá Katrínu Torfadóttur í Bæ í Flóa, fyrst að láni 1704, svo til eignar 1708 (sbr. seðla).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 20. nóvember 1981.
Aðrar upplýsingar
- ÞS skráði samkvæmt reglum TEI P528.-29. desember 2009.
- DKÞ færði inn grunnupplýsingar 16. júlí 2003.
- Kålund gekk frá handritinu til skráningar 16. október 1886 (sjá Katalog I 1889:426 (nr. 801).
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í júlí 1975.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.