Skráningarfærsla handrits

AM 120 4to

Grágás ; Ísland, 1640-1641

Innihald

1 (1r-146r)
Grágás
Titill í handriti

GRAGAAS | þad er | Su LogBok ſem hier J Landi hefur | geingid til Logſagnar J Gamallre tijd …

Efnisorð
2 (146v-165v)
Járnsíða
Titill í handriti

huercki mig Gomul laug | nie nij, og þui kalla eg þetta | Jnterim

Athugasemd

Hefst á Mannhelgi.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír
Blaðfjöldi
iii + 165 + iii blöð ().
Umbrot

Skrifarar og skrift

Ein hönd.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Fáeinar spássíugreinar með hendi Þormóðs Torfasonar, t.d. á bl. 160r: vantar 11 blod, en skrifari auðkennir ekki eyðu í textann.
  • Undir fyrirsögninni á bl. 146r er athugasemd með hendi Árna Magnússonar: Effterfylgiande lỏgbok heitir ecke Interim helldur Jarnſiþa. teſtibus antiqviſſimis annalibus membraneis in Bibliotheca Reſenii.

Band

Kjölur klæddur skinni, pappaspjöld klædd brúndoppóttum, glansandi pappír.  

Í gömlu bandi voru spjöld og kjölur klædd bókfelli úr kirkjulegu, latnesku handriti.  

Fylgigögn

Þrír seðlar.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er skrifað á Skarði á Snæfjallaströnd á árunum 1640-1641 (sjá  Katalog I , bls. 412) fyrir séra Jón Arason í Vatnsfirði (sbr. dróttkvæða vísu á 165v).

Ferill

Séra Jón Arason í Vatnsfirði sendi Þormóði Torfasyni handritið árið 1664 (sbr. seðil). Árni Magnússon fékk það síðan frá ekkju Þormóðs árið 1720 (sbr. seðil).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 27. júní 1973.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Tekið eftir Katalog I , bls. 412-13 (nr. 779). Kålund gekk frá handritinu til skráningar 3. október 1886 og bætir við: [Overfórt 29/9 17. GI skráði 12. febrúar 2001.

Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi, sem keypti þær af Arne Mann Nielsen í janúar 1973.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn