„Hallfreðar saga“
Skrifað eftir Möðruvallabók, AM 132 fol. (sbr. seðil).
„Þorvaldur hét maður og var kallaður skiljandi …“
„… er margt manna frá honum komið.“
Og lýkur hér sögu Hallfreðar.
Upprunaleg blaðsíðumerking 1-52.
Með hendi Guðmundar Magnússonar, sprettskrift.
Niðurlag sögunnar endar í totu (bl. 26v).
Band frá 19. öld (318 mm x 204 mm x 8 mm). Pappaspjöld klædd brúnleitum marmarapappír. Skinn á kili og hornum. Blár safnmarksmiði á kili.
Fastur seðill (241 mm x 179 mm) fremst með upplýsingum um uppskriftina á latínu: „Hallfredar saga Vita hallefredi, Vandræda-skalld dicti Celeberrimi olim poïta et Aulici Olavi Tryggvini egis Norvegiæ. Descripta ex Volumine Historico Membranaceo, qvod in b. A. Magnæi, inter Libros in Folio exstat, Num 132.“
Handritið var skrifað í Kaupmannahöfn. Það er tímasett til síðari hluta 18. aldar í Katalog I , bls. 308, en virkt skriftartímabil skrifara var ca 1750-1798.
Kom til Árnasafns frá Det Kongelige Nordiske Oldskrift-Selskab 1883.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 16. mars 1985.
Bundið á 19. öld.