Skráningarfærsla handrits
AM 354 fol.
Handrit hefur ekki verið myndað stafrænt
Lögbók; Ísland, 1397-1410
Innihald
Kristinréttur Árna biskups
Með viðaukum.
Kirkjuskipanir
Enginn titill
Skipan Goðsvins biskups um tíund
Um kirkjubót vegenda
Eiðstafir
Latína
Íslenska
Rekamörk
„Um rekamark milli Hornafjarðar og Hjörleifshöfða“
Lög
„Hvað gagngjald og gjöf er með réttu“
Lög
„Um lögfesting Íslendinga“
Erfðamál
„XIII. Erfð laungetinna“
Ráðsmannseiður í Skálholti
Skipan Sveins biskups 1472
Úr réttarbót um refsingu fyrir því að bera ljúgvitni
„RBCK“
Jónsbók
Hlutum úr Hirðskrá og Kristinrétti Jóns erkibiskups skotið inn í, sem og úr Skipan Vilhjálms kardínála um helgidaga og kirkjufé.
Lýsing á handriti
Efri hluti ytri spássíu á bl. 138 rifinn af.
Upphafsstafir í mörgum litum.
Rauðritaðar fyrirsagnir.
Viðbætur við texta:
- Bl. 1: Innskotsblað frá 17. öld (sbr. Katalog I, bls. 287), skrifað á versósíðu.
- Bl. 43r-46r: Viðbætur frá c1400, c1410-1430 og c1500 (sjá um uppruna).
Aðrar viðbætur:
- Bl. 1r, sem upprunalega var autt: Tvær lausavísur og pennakrot.
- Bl 32: Viðbót með hendi Árna Magnússonar á neðri spássíu.
- Bl. 46v-47, sem upprunalega voru auð: Tvær vísulínur og pennakrot.
- Bl. 139, sem upprunalega var autt: Mannanöfn og pennakrot.
Einn seðill (193 mm x 149 mm) með hendi Árna Magnúsonar: „F.3. er í folio hefur og átt heima í Skálholti forðum. Þar er á: 1. Kristinréttur nýr. 2. statutum prolixum Eilifi Archi Episcopi, confirmatum per Joh. episcopi Scalholltini. 3. Statutum Eilifi Archiepiscopi 1320. 4. statutum Magni episcopi Scalholtini. 5. Statutum Arnoris Episcopi Scalholtini integrum. 6. Svo segir lögbók h(uic?) kirkju. 7. Statutum Johannis et Gyrdi Episcoporum Scalholtinum. 8. Consessio fidei. cum peenitentias. 9. Additamento de modo imponendi. 10. Statutum Gyrdi episcopi 1359. eiqve perperam annexum. 11. Ejus Gyrdi Episcopi Statutum 1354. initio mutilum. 12. statutum Vilkini Episcopi 1396. 13. Sættagjörð Magnúss konungs og Jóns rrkibiskups. verte. 14. Bréf Honorum og Martini páfa til Eiríks Noregskonungs. 15. Statutum Johannis Archiepiscopi prolixum (est datum 1280). 16. Statutum Johannis Episcopi Scalholtini. 1326. 17. Statutum Godsvini Epischopi Scalholtini. 1439. 18. Juramenta qvædam. 19. Statutum Svenonis Episcopi 1472. hæc sunt variis alienis manibus exarata sunt, sed veteribus. 20. Jónsbók og þar í Kristindómsbálki. 21. Hirðmannasiðir. Admodum vitiose exaratus est hic codex, habet alias: sig siette id est 69 hafua et similia. ei pro eigi.“
Uppruni og ferill
Meginhluti handritsins, bl. 2r-43r:6 og 48r-138v, er tímasettur til c1400 (sbr. ONPRegistre, bls. 442 og Katalog I, bls. 287).
Viðbætur með öðrum höndum eru tímasettar á eftirfarandi hátt (sbr. ONPRegistre, bls. 442):
- Bl. 43r:7-29 til c1500.
- Bl. 43v:25-44r til c1400.
- Bl. 45v-46r:4 til c1410-1430.
- Bl. 46r:5-19 til c1500.
Í Katalog I, bls. 287, eru viðbæturnar tímasettar til 15. og 16. aldar.
Í handritaskrá Árna Magnússonar er bókin talin upp meðal annarra í afhendingu Skálholtsstaðar til Þórðar Þorlákssonar biskups árið 1674 (sbr. AM 435 a 4to, bl. 153r (útg. bls. 48)) og einnig meðal handrita sem Jón Vídalín biskup sendi Árna árið 1699 (sbr. AM 435 a 4to, bls. 186v (útg. bls. 61)).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 23. nóvember 1987.
Aðrar upplýsingar
Athugað í október til nóvember 1987.
Viðgert í mars 1973.
- Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
- Svart-hvítar ljósmyndir á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi, gefnar af Arne Mann Nielsen í desember 1972.