„Þingskapa þáttur“
Ófullgerð uppskrift eftir Konungsbók Grágásar, GKS 1157 fol. Sami texti og í AM 339 fol. og virðist liggja því handriti til grundvallar.
Pappír með vatnsmerkjum.
Mótmerki 1: Fangamark P (IS5000-02-0341_8v), bl. 8, 14-17, 21, 25-27, 31, 34, 38-39. Stærð: 14 x 9 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 25 mm.
Notað frá 1640 til 1660.
Mótmerki 1(par): Fangamark IP (IS5000-02-0341_6v), bl. 2, 6, 19-20, 29. Stærð: 14 x 23 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 26 mm.
Notað frá 1640 til 1660.
Blaðmerking með rauðu bleki, síðari tíma viðbót.
8 kver:
Kålund telur að skrifari sé Hákon Ormsson Katalog I, bls. 278.
Upphafsstafir, 1-4 línur, mismunandi skreyttir.
Fyrirsagnir og millifyrirsagnir eru skrifaðar með stærri og meira flúruðu kansellíbrotaskrift.
Griporð eru skreytt, stundum með einföldum línum, stundum með stafaflúri niður blaðið. Sams konar stafaflúr má einnig finna í AM 108 fol. og AM 113 d fol.
Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk, dökkt brúnt leður á kili og hornum.
Eldra pappaband. Á fremra spjaldi er talan „341“, en á kili eru tveir límmiðar með safnmarki.
Fastur seðill (164 mm x 107 mm) fremst með hendi Árna Magnússonar: „Þetta hefi ég víst fengið af Jóni Daðasyni, en hann frá Vallá.“
Á versóhlið seðils, „Af Saxonis“.
Handritið var skrifað á Íslandi. Tímasett til um 1650 í Katalog I , bls. 278. Mögulega skrifað af Hákoni Ormssyni.
Árni Magnússon fékk handritið frá Jóni Daðasyni sem fékk það frá Vallá (sbr. athugasemd fremst).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 6. júlí 1973.
Viðgert og bundið í apríl 1967. Eldra band fylgir með í öskju.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.