Skráningarfærsla handrits

AM 339 fol.

Grágás ; Ísland, 1640-1660

Innihald

(1r-115v)
Grágás
Athugasemd

Uppskriftin nær frá Þingskapaþætti til at tengdum í Vígslóða.

Skipting efnisins er óvenjuleg sem og sum kaflaheitin.

Á bl. 1v eru nokkrar athugagreinar um Úlfljót og eldri lögsögumenn.

Á bl. 1 bis er titillinn: Grä-Gaas.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Kanna með einu handfangi 1 // Ekkert mótmerki ( 1 , 3-5 , 7-8 , 10 , 12 , 15 , 17 , 25 , 27 , 33 , 37 , 38-39 , 47-48 , 51-53 , 56-57 , 61 , 74 , 82 , 90-91 , 94 , 96 , 105bis , 111-112 ).

Vatnsmerki 2. Aðalmerki: Kanna með einu handfangi 2 // Ekkert mótmerki ( 14bis , 16 , 26 , 28-31 , 40 , 55 , 62-63 , 65 , 73 , 75-76 , 81 , 83-84 , 89 , 92 , 98 , 100-102 , 104 , 108 ).

Blaðfjöldi
115 blöð (296 mm x 203 mm).
Tölusetning blaða

Blaðmerkt 2-110, en hlaupið yfir bl. 1-1 ter, 14 bis, 21 bis og 105 bis.

Umbrot

Aðeins skrifað á versósíður, að bl. 102-110 undanteknum.

Ástand

Handritið hefur skemmst af raka.

Skrifarar og skrift

Ein hönd.

Nótur

Nótur á bókfelli í bandi.

Band

Spjöld og kjölur klædd bókfelli úr latnesku helgisiðahandriti með nótum.

Fylgigögn

  • Bréf (í afriti?) frá Ormi Daðasyni til Árna Magnússonar frá árinu 1727.
  • Einn seðill (159 mm x 104 mm) með hendi Árna Magnússonar: Þórði Jónssyni tilskrifað (1698) mér hafa í hendur borist frá Íslandi nokkur lemmata yfir bálka nokkra og þeirra capita úr Grágás með þessari notitia þar hjá: Þessi þáttanöfn segist Björn Jónsson [á] Undirfelli hafa uppskrifað 1673 úr þeim blöðum er hann léði Birni sálugum Gíslasyni. Þau hafði skrifað Snorri Þórðarson (úr Kjós) eftir bók Brynjólfs í Lóni. Blöð Björns eru í Bæ ennþá [?] og fannst ei. Um þetta gæti ég gjarnan frekari vissu haft ef fengist.

Uppruni og ferill

Uppruni

Skrifað af Hákoni Ormssyni og tímasett til um 1650 í Katalog I , bls. 277.

Ferill

Ormur Daðason seldi Árna Magnússyni handritið í hendur með bréfi frá 1727, sem fest er fremst í handritið. Hann hafði þá nýlega fundið það í Saurbæ á Rauðasandi.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 6. júlí 1973.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Tekið eftir Katalog I , bls. 277 (nr. 497). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í janúar 1886. DKÞ skráði 27. ágúst 2001. ÞÓS skráði 8. júlí 2020.

Viðgerðarsaga

Gömul viðgerð á fremsta og aftasta blaði.

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Andersen, Merete Geert
Titill: Colligere fragmenta, ne pereant,
Umfang: s. 1-35
Lýsigögn
×
Efni skjals
×
  1. Grágás

Lýsigögn