„Apologia. Um öll mín jarðakaup. Anno Domini 1665“
„Virðulegir herrar, höfðingjar og heiðursmenn …“
Frumrit af dómum, kaupbréfum og fleiri skjölum varðandi jarðaviðskipti Jóns Daðasonar, prests á Arnarbæli, frá árunum 1649-1676. Registur fyrir bréfunum er á bl. 59v-60r. Þar fyrir aftan er hjúskaparsáttmáli frá 1676 og lagakaup.
Pappír með vatnsmerkjum.
Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Skjaldarmerki // Ekkert mótmerki (fastur seðill fremst í handriti, fyrir ÁM).
Vatnsmerki 2. Aðalmerki: Stórt skjaldarmerki skipt niður í fjóra hluta, fjaðraskúfur að ofan // Ekkert mótmerki ( 1 , 52-54 , 58-59 ).
Vatnsmerki 3. Aðalmerki: Þrír smárar með stilkum og bókstöfum DT í tvöföldum hring // Ekkert mótmerki ( 5-7 , 18-20 , 22 , 26-35 , 39 ).
Vatnsmerki 4. Aðalmerki: Brenninetla // Ekkert mótmerki ( 40-42? , 44 , 61? ).
Vatnsmerki 5. Aðalmerki: Skjaldarmerki Amsterdam 1, fangamark CF? TC? ( 50 , 53 , 56 ) // Mótmerki: Fangamark MPB 1 ( 48 , 51 , 54 , 57 ).
Vatnsmerki 6. Aðalmerki: Skjaldarmerki Amsterdam 2 ( 55 ) // Mótmerki: Fangamark MPB 2 ( 49 ).
(vatnsmerki greinilegt t.d. á bl. 5).Handritið hefur verið blaðmerkt síðar 1-63.
Bleksmitun er nokkur og leturflötur hefur sums staðar dökknað.
Með hendi Jóns Daðasonar, kansellíbrotaskrift.
Bl. 61r-62r eru þó með annarri hendi.
Band frá árunum 1772-1780 (337 mm x 206 mm x 18 mm). Pappaspjöld klædd handunnum pappír, blár safnmarksmiði á kili.
Seðill (40 mm x 97) mm límdur framan á saurblað þar sem skrifað stendur: „Þessa bók á ég Árne Magnússon“.
Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til 17. aldar í Katalog I , bls. 240, en skjölin eru dagsett árin 1634-1676.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 12. september 1974.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.