Skorið hefur verið utan af blöðunum og hafa sumar spássíugreinarnar skaddast við það.
Á hverri síðu er teikning (sumar litaðar) af einu hinna tólf dýra dýrahringsins.
Mikið af rauðu, gulu, bláu og grænu bleki.
Íslensk nöfn manna og kvenna hafa verið færð inn við dánardægur með hendi frá um 1300. Enn fremur hefur Brynjólfur Sveinsson biskup fært inn dánardag Jóns Arasonar og tveggja sona hans.
mm x mm x mm
Fastur seðill (162 mm x 100 mm) með hendi Árna Magnússonar: „Þetta fengið á Íslandi framan við Psalterium. Hefi einhvern tíma verið í Skálholtskirkju.“
Tímasett til 13. aldar í Katalog I , bls. 226.
Samkvæmt seðli voru þessi blöð framan við saltara er einhvern tíma var í eigu Skálholtskirkju.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 17. september 1993.
Tekið eftir Katalog I , bls. 226 (nr. 391). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í janúar 1886. Haraldur Bernharðsson skráði 29. janúar 2001.
Birgitte Dall gerði við handritið í júlí-ágúst 1968.
Yfirfarið á AM-verkstæði í apríl-ágúst 1993.