Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 239 fol.

Postula sögur ; Ísland, 1350-1400

Innihald

1 (1v-35r)
Tveggja postula saga Jóns og Jakobs
Niðurlag

gengr hann tıl herbergıs

Athugasemd

Óheil.

Efnisorð
2 (36r-52v)
Jóns saga baptista
Upphaf

Af huerío mar

Athugasemd

Óheil.

3 (52v-95v)
Péturs saga postula
Athugasemd

Bls. 184-190 auðar.

Efnisorð
4 (96r-101v)
Andrés saga postula
Upphaf

ſęll andreaſ postolı ſa þat

Athugasemd

Vantar framan af.

Efnisorð
5 (101v-109v)
Viðræður Gregoríusar
Titill í handriti

Jncıpıt prımuſ lıber dıalogorum quem fecıt beatuſ gregorıuſ papa

Niðurlag

Enn er þeir riſu upp af íordv

Athugasemd

Óheilar.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn (innskotsblöð úr pappír)
Blaðfjöldi
109 blöð (300 mm x 202 mm).
Tölusetning blaða

Rektósíður merktar 1-217, þar með talin innskotsblöð merkt 171-189.

Umbrot

Ástand

Vantar mjög víða blöð í handritið:

  • tvö á eftir bls. 4
  • eitt á eftir bls. 8
  • tuttugu á eftir bls. 40
  • eitt á eftir bls. 58
  • eitt á eftir bls. 66
  • um sex á eftir bls. 70 (með niðurlagi Tveggja postula sögu Jóns og Jakobs)
  • líklega eitt framan við bls. 71 (með upphafi Jóns sögu baptista)
  • um tvö á eftir bls. 72
  • um tvö á eftir bls. 74
  • um sex á eftir bls. 76
  • eitt á eftir bls. 78
  • eitt á eftir bls. 90
  • blöð með niðurlagi Péturs sögu postula og upphafi Andrésar sögu postula, þar sem bls. 171-190 hefur verið skotið inn
  • eitt blað á eftir bls. 206
  • niðurlag Viðræðna Gregoríusar á eftir bls. 218.

Skrifarar og skrift

Ýmsar hendur.

Skreytingar

Litaðir upphafsstafir.

Rauðar fyrirsagnir.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Bls. 171-190 innskotsblöð frá 17. öld; bls. 171-183 með uppskrift Magnúsar Jónssonar í Vigur á því sem vantar aftan af Péturs sögu postula í handritinu (en bls. 184-190 auðar).
  • Allmikið af pennakroti og þess háttar, auk nokkurra rúnastafa á bl. 1r, sem upprunalega var autt.

Band

Nýlegt band.

Band frá 1935.

Fylgigögn

Fjórir seðlar með hendi Árna Magnússonar:

  • Seðill 1 (164 mm x 105 mm): Johannis og Jacobi postula p. 2-70 sögur: vantar mikið í aftan af Johannis sögu baptista p. 71-104. Péturs saga postula, vantar [p. 104-190] nokkuð við endann, sem annars staðar að tilsett er á pappír. [með hendi Magnúsar sál. í Vigur] Andreas postula saga. Vantar mikið framan við p. 191-202. Úr Gregorii dialogis, nokkuð endasleppt p. 202-215.
  • Seðill 2(164 mm x 105 mm): Postula sögur ætlar séra Páll Ketilsson, Tómas Þorsteinsson um hönd haft hafa, (a) í sínu (séra Páls) ungdæmi, skrifaðar á kálfskinn. Ekki veit séra Páll neitt til, að þær hafi komist til Þorláks Arasonar, svo að sú Relatio er annars staðar að til mín komin. Qvæ te(?) vera est. // a] hvert hann þær átt hafi eða til láns haft, veit séra Páll ekki.
  • Seðill 3 (165 mm x 108 mm): Postula sögur (a) meinast vera á Hvali, komnar til Þorláks Arasonar frá Tómasi Þorsteinssyni. Relatio cujus dam. Tólf Postula sögur in membrana segir Helga Þorláksdóttir, Arasonar, föður sinn fengið hafa Magnúsi Magnússyni á Eyri í Seyðisfirði, áður hann (Þorlákur) austur flutti, meinar hún í sömu bók verið hafa Maríu sögu og hafi bókin býsna þykk verið. Ég á nú þessar postula sögur, fengnar af Páli Jónssyni lögmanni en hann fékk þær í Vigur. Magnús Jónsson af Magnúsi Magnússyni.
  • Seðill 4 (165 mm x 105 mm): Magnús Magnússon á Eyri í Seyðisfirði skrifaði amtmanninum Christian Müller anno 1698 til að hann vel fyrir 30 árum, hafi haft eina pergaments bók íslenska með gamalli skrift, rotna, máða og ólæsilega, innihaldandi nokkurra postula (hvað margra man hann ei, eigi heldur að þar hafi í verið Maríu saga) lífs sögur. Hafi í bókinni allvíða blöð vantað. Og með því þessar sögur ei fullkomnar verið hafi, hafi hann ei mjög bókina æstimerad og þar fyrir, fyrir mörgum árum, í burtu fengið og viti nú ei hvar // niðurkomin sé: Bókina segist hann fengið hafa af Þorláki heitnum Arasyni. (a) 1699 skrifar hann að ei minnist gjörla hverjum hana fengið hafi, og geti hana ei uppspurt. a] NB: Magnús í Vigur fékk þessar postulasögur af Magnúsi Magnússyni, en P.J.W eftir Magnúsi í Vigur, og á ég þær nú.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bl. 1v-35v eru tímasett til c1360-1370 og bl. 36r-85v og 96r-109v til c1350-1400 (sjá ONPregistreistre , bls. 438). Í Katalog I , bls. 201, eru blöðin tímasett í einu lagi til síðari hluta 14. aldar.

Ferill

Handritið tilheyrði á 17. öld Magnúsi Magnússyni á Eyri í Seyðisfirði, en um 1670 gaf hann það Magnúsi Jónssyni í Vigur. Tengdasonur hans Páll Vídalín lögmaður erfði handritið og gaf Árna Magnússyni (sbr. seðla og AM 435 a 4to, bl. 10v-11r). Aðrar upplýsingar Árna um fyrri eigendur, sérstaklega Þorlák Arason, dregur Kålund í efa ( Katalog I , bls. 201).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 11. nóvember 1994.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Tekið eftir Katalog I , bls. 206-207 (nr. 361). Ekki kemur fram hvenær Kålund gekk frá handritinu til skráningar. DKÞ skráði 4. júlí 2001.

Viðgerðarsaga

Viðgert í ágúst 1992 til júlí 1994. Var í nýlegu bandi við skráningu í spjaldaskrá (án dags.). Nákvæm lýsing á myndun og viðgerð fyldi frá Kaupmannahöfn.

Viðgert og bundið í Kaupmannahöfn 1935. Það band fylgir ásamt öskju.

Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi, sem keypti þær af Arne Mann Nielsen í febrúar 1985.
  • Sýnishorn í Early Icelandic Manuscripts in Facsimile 7, 1967 .

Notaskrá

Höfundur: Seip, Didrik Arup
Titill: Nordisk kultur, Palæografi. B. Norge og Island
Umfang: 28:B
Höfundur: Guðvarður Már Gunnlaugsson
Titill: Sýnisbók íslenskrar skriftar
Höfundur: Hreinn Benediktsson
Titill: Linguistic studies, historical and comparative
Höfundur: Jóhann Gunnar Ólafsson
Titill: Magnús Jónsson í Vigur, Skírnir
Umfang: 130
Höfundur: Jónas Kristjánsson
Titill: Sagnalíf : sextán greinar um fornar bókmenntir, Learned style or saga style,
Ritstjóri / Útgefandi: Þórður Ingi Guðjónsson
Umfang: 90
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Wolf, Kirsten
Titill: Gripla, A comment on the dating of AM 226 fol. (Samtíningur)
Umfang: 8
Titill: Gyðinga saga,
Ritstjóri / Útgefandi: Wolf, Kirsten
Umfang: 42
Titill: Ordbog over det norrøne prosasprog: Registre
Ritstjóri / Útgefandi: Den arnamagnæanske kommision
Höfundur: Bekker-Nielsen, Hans, Shook, L. K., Widding, Ole
Titill: The Lives of the Saints in Old Norse Prose: A Handlist, Mediaeval Studies
Umfang: s. 294-337
Höfundur: Stefán Karlsson
Titill: Sagas of Icelandic bishops. Fragments of eight manuscripts, Introduction
Umfang: s. 9-61
Höfundur: Stefán Karlsson
Titill: Om norvagismer i islandske håndskrifter,
Umfang: 3-4
Höfundur: Stefán Karlsson
Titill: Helgafellsbók í Noregi,
Umfang: s. 347- 49
Höfundur: Svanhildur Óskarsdóttir
Titill: Dómsdagslýsing í AM 764 4to,
Umfang: s. 186-193
Höfundur: Ólafur Halldórsson
Titill: Ólafs saga Tryggvasonar en mesta,
Umfang: 3
Höfundur: Ólafur Halldórsson
Titill: , Skarðsbók - uppruni og ferill
Umfang: I
Höfundur: Ólafur Halldórsson
Titill: Helgafellsbækur fornar,
Umfang: 24
Titill: Sögur úr Skarðsbók
Ritstjóri / Útgefandi: Ólafur Halldórsson
Titill: Rómverja saga
Ritstjóri / Útgefandi: Þorbjörg Helgadóttir
Höfundur: Þórhallur Þorgilsson
Titill: Árbók 1946 (Landsbókasafn Íslands), Þýðingar úr ítölskum miðaldaritum
Umfang: 3-4
Lýsigögn
×

Lýsigögn