„Hér byrjast Hungurvaka“
„[B]ækling þennan kalla eg Hungurvöku …“
„… bæði við óhlýðna menn og rangláta.“
Hungurvaka 1778.
„Þorlákur hinn helgi, sjötti biskup í Skálh(olti).“
„[Í] þann tíma er stýrði Guðs kristni Innocentius páfi …“
„… lofandi Guð og hinn sæla Þorlák biskup.“
„Frásögn hin sérlegasta af Páli Jónssyni sjöunda Skálholtsbiskupi“
„[P]áll var son Jóns, göfugasta manns, Loftssonar …“
„… af sínum frændum jafngöfugum.“
ÍFXVI.
Aðeins hluti sögunnar, skrifaður á upprunalega auðar síður (sbr. Kålund, bls. 168).
„Hér byrjar sögu af Laurentio Hólabiskupi“
„[Þ]ann tíma er almenniligri kristni Guðs stýrði postullegur faðir Úrbanus hinn fjórði …“
„… en allir menn máttu sjá hvað leið megin hans.“
„Hér hefst saga af Guðmundi biskup Arasyni góða þeim fimmta að Hólum“
„[Þ]orgeir Hallason bjó undir Hvassafelli í Eyjafirði …“
„… og tveir synir Þórðar Laufæsings, Hákon og Hildibrandur.“
„Hér hefur upp frásögn af herra Árna Þorlákssyni x. biskupi í Skálaholti“
„[H]erra Árni biskup er þessi frásögn er af skrifuð …“
„… með bændum þennan eið.“
ÍFXVII.
Aðeins hluti sögunnar.
Pappír með vatnsmerkjum.
Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Bær með þremur turnum, fangamörk C4 og IK ásamt kórónu ( 2 , 4 , 6 , 8-11 , 13 ) // Mótmerki: Bókstafur S ( 1 , 3 , 5 , 7 , 12 , 14-16 ).
Vatnsmerki 2. Aðalmerki: Skjaldarmerki með sverðlilju // Ekkert mótmerki ( 18 , 20 , 22 , 24 , 29-35 , 41-42 , 44 , 47 ).
Vatnsmerki 3. Aðalmerki: Akkeri // Ekkert mótmerki ( 48-50 , 52 , 56 , 60-62 , 65-67 , 71-72 , 75 , 77-78 , 80 ).
Upprunaleg blaðmerking 267-346, en handritið var blaðmerkt síðar með blýanti 1-80, efst á milli dálka.
Dökkur blettur neðarlega við kjöl á bl. 61. Blaðið hefur verið styrkt með pappír.
Með hendi Þorsteins Björnssonar á Útskálum, fljótaskrift, smágerð og þétt.
Nótur á bókfelli í gömlu bandi.
Band frá júlí 1978 (299 mm x 218 mm x 25 mm). Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk, grófari dúkur á kili og hornum, saumað á móttök. Saurblöð tilheyra bandi.
Spjöld og kjölur í eldra bandi klædd bókfelli úr latnesku helgisiðahandriti með nótum.
Bókin sem handritið tilheyrði var í eigu skrifarans séra Þorsteins Björnssonar á Setbergi (að Útskálum) og síðar Sigurðar Björnssonar lögmanns (sbr. JS 409 4to og seðla í AM 121 fol. og AM 158 fol.).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 26. september 1978.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í júlí 1978.