„Sagann af Halfe oc Halfs | reckom“
Blaðmerkt af skrifara.
Ein hönd.
Leiðréttingar og fáein lesbrigði á spássíum (bls. 3, 9 og 10) með hendi Árna Magnússonar.
Band frá 1982.
Fastur seðill (172 mm x 107 mm)með hendi Árna Magnússonar: „Úr núm. 13 frá ekkju Þormóðar Torfasonar.“
Skrifað af Ásgeiri Jónssyni og tímasett til um 1700 í Katalog I , bls. 165, en virkt skriftartímabil Ásgeirs var c1686-1707. Var áður hluti af stærri bók sem innihélt einnig hluta AM 34 fol., AM 67 a fol., AM 193 a fol., AM 173 fol., AM 193 b fol., AM 193 c fol., AM 193 e fol., AM 7 fol. og AM 17 fol. (sbr. AM 435 b 4to, bl. 5v-6v).
Bókin sem handritið tilheyrði var nr. XIII í safni Þormóðs Torfasonar. Árni Magnússon fékk hana frá ekkju Þormóðs árið 1720 og tók í sundur (sbr. seðil og AM 435 b fol., bl. 6v).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 28. október 1983.
Viðgert og bundið 1982. Eldra band fylgir.