Skráningarfærsla handrits

AM 202 b fol

Hálfs saga og Hálfsrekka ; Ísland, 1625-1672

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-12v)
Hálfs saga og Hálfsrekka
Titill í handriti

Søgu þättur af Alfe | Kónge Og Alfs Reckumm

Athugasemd

Smávægilegar eyður í texta auðkenndar á stöku stað.

Tungumál textans
íslenska

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Tveir turnar með tveimur egglaga gluggum ( 1, 4-5, 8-9, 11 ) // Mótmerki: Fangamark PH ( 2-3, 6-7, 10, 12 ).

Blaðfjöldi
i + 12 + i blað (313-316 mm x 192-196 mm).
Tölusetning blaða

Blaðmerking með svörtu bleki, 1-12, síðari tíma viðbót.

Kveraskipan

4 kver:

  • I: spjaldblað - fylgigögn 1 (eitt tvinn + eitt blað)
  • II: bl. 1-10 (5 tvinn: 1+10, 2+9, 3+8, 4+7, 5+6)
  • III: bl. 11-12 (1 tvinn: 11+12)
  • IV: aftara saurblað - spjaldblað (eitt tvinn)

Umbrot
  • Eindálka.
  • Leturflötur er 230 mm x 125 mm.
  • Línufjöldi er 23-26.
  • Eyða fyrir fyrsta höfuðstaf, 3 línur.
  • Griporð (bl. 10v).
Ástand
  • Blöð eru dökk, vegna bletta og óhreininda.
  • Viðgerðir við kjöl.
  • Bleksmitun.
Skrifarar og skrift

Ein hönd, Jón Erlendsson, kansellíbrotaskrift.

Skreytingar

Í upphafi efnisgreina, er höfuðstafur stærri og smá skreyttur.

Fyrirsagnir og fyrsta lína texta eru með stærra letri, sumir skreyttir með blómaflúri.

Síðasta lína textans er styttri og skrifuð í miðju.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur
  • Neðarlega á bl. 12v, kemur nafnið Arne Þordar son fyrir.
  • Spássíugreinar og undirstrikanir í texta víðs vegar.
  • Kaflanúmer og athugasemdir með blýanti á spássíum.
Band

Band frá 1982. Spjöld klædd fínofnum dúk.

Áður, pappaband frá tíma bókavarðarins Jens Jacob Weber, um 1771-1780. Safnmark (ásamt stafnum 'b') og titli sögunnar skrifað á bókarkápu. Tveir límmiðar með safnmarki og númeri á kili.

Fylgigögn

Fastur seðill (86 mm x 161 mm) með hendi Árna Magnússonar og skrifara hans, e.t.v. Styrs Þorvaldssonar: Hálfs-saga (og) Hálfsrekka. Með hendi séra Jóns í Villingaholti léð mér af Jóni Þorlákssyni 1709 og síðan seld 1710. Var til forna í innbundinni bók.

Uppruni og ferill

Uppruni

Skrifað á Íslandi, af Jóni Erlendssyni og tímasett til 17. aldar í Katalog I, bls. 164, en virkt skriftartímabil Jóns var ca 1625-1672. Var áður hluti af stærri bók (sbr. seðil). Í þeirri bók voru einnig AM 1 a fol., AM 9 fol., AM 139 fol., AM 156 fol., AM 169 a fol., AM 169 b fol., AM 169 d fol. og AM 192 fol.

Ferill

Árni Magnússon fékk handritið lánað hjá Jóni Þorlákssyni árið 1709 og keypti það af honum árið 1710 (sbr. seðil).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 24. október 1983.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
  • MJG fór yfir skráningu með gögnum frá BS, 13. febrúar 2024.
  • EM skráði kveraskipan 20. júní 2023.
  • ÞÓS skráði 30. júní 2020.
  • DKÞ skráði 20. apríl 2001.
  • Tekið eftir Katalog I, bls. 164-165 (nr. 310). Kålund gekk frá handritinu til skráningar 30. janúar 1886.
Viðgerðarsaga

Viðgert og bundið 1982. Eldra band fylgir.

Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi, sem keypti þær af Arne Mann Nielsen 11. nóvember 1971.

Notaskrá

Titill: Fornaldar sögur Norðrlanda II.
Ritstjóri / Útgefandi: Rafn, C. C.
Höfundur: Guðrún Ása Grímsdóttir, Þórður Jónsson í Hítardal
Titill: Ættartölusafnrit séra Þórðar Jónssonar í Hítardal I-II
Titill: Hálfs saga ok Hálfsrekka,
Ritstjóri / Útgefandi: Seelow, Hubert
Umfang: 20
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×

Lýsigögn