„Sagann Af Wilialme siöd | Er fundeſt ſkal hafa J Babylon | Og ſamſett af Homero“
Bl. 39 autt.
„Saga Af Ala Fleck“
Pappír með vatnsmerkjum
Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Bær 1, með þremur turnum og fangamarki HB // Ekkert mótmerki ( 2 , 4 , 6 , 8 , 10 , 13-14 , 16-17 , 19 , 21 , 23 , 26-27 , 29 , 32-34 , 37-38 ).
Vatnsmerki 2. Aðalmerki: Bær 2, með þremur turnum, fangamarki C4 og virðist einnig vera fangamark IK ( 40 , 42-43 , 46 , 48 ) // Mótmerki: Bókstafur S ( 41 , 44-45 , 47 ).
Ein hönd, brotaskrift.
Viðbót við fyrirsögn á bl. 1r, með hendi Brynjólfs Sveinssonar biskups: (non qvod home|rus hoc opus unqvam ſcripſerit, verum qvod ma|teriam hyperbolarum auctor ex Homero hauſerit).
Band frá 1982.
Spjöld og kjölur í eldra bandi klædd bókfelli úr kirkjulegu latnesku handriti.
Á bókfellinu er stór litskreyttur upphafsstafur.
Fastur seðill (178 mm x 159 mm) með hendi Árna Magnússonar: „Vilhjálms saga sjóðs. Ála flekks saga. Með hendi séra Jóns Erlendssonar í Villingaholti. Úr bók er ég fékk af séra Ólafi Gíslasyni á Hofi í Vopnafirði.“
Skrifað af Jóni Erlendssyni og tímasett til c1635-1648, en til 17. aldar í Katalog I , bls. 154. Var áður hluti af stærri bók (sbr. seðil). Sú bók innihélt einnig AM 134 fol.
Bókina sem handritið var tekið úr fékk Árni Magnússon frá sr. Ólafi Gíslasyni á Hofi í Vopnafirði (sbr. seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 18. október 1983.
Viðgert og bundið 1982. Eldra band fylgir.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.