„Hier Byriar Myrm|anz Søgv“
Bl. 10 autt að mestu til að tákna eyða í texta. Bl. 13v autt.
Pappír með vatnsmerkjum.
Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Skjaldarmerki með sverðlilju og kórónu efst // Ekkert mótmerki ( 1 , 3-4 , 7 , 10 ).
Upprunaleg blaðmerking 417-426.
Bl. 11-13 innskotsblöð með texta sem fyllir upp í eyðu sem auðkennd er á bl. 10.
Skinnband.
Eldra pappaband.
Seðill með hendi Árna Magnússonar.
Tímasett til um 1650 í Katalog I , bls. 152. Var áður hluti af stærri bók sem samkvæmt Jóni Sigurðssyni var skrifuð um 1640-1650 og innihélt einnig AM 181 a-f fol., AM 181 h fol. og AM 181 k-l fol. (sbr. JS 409 4to). Að auki voru í bókinni Elis saga, Flóvents saga og Jarlmanns saga, sem ekki er nú að finna í neinu þessara handrita (sbr. AM 477 fol.).
Bókin sem handritið tilheyrði var í eigu Þorsteins Björnssonar prests á Útskálum og síðar Sigurðs Björnssonar lögmanns.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 6. maí 1997.
Viðgert í mars til júní 1982 og var í nýlegu skinnbandi við skráningu í spjaldskrá (án dags.). Eldra pappaband fylgir. Nákvæm lýsing á ljósmyndun og viðgerð, ásamt lýsingu á kveraskiptingu, fylgdi frá Kaupmannahöfn.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.