Skráningarfærsla handrits

AM 181 g fol.

Mírmanns saga ; Ísland, 1640-1660

Innihald

(1r-13v)
Mírmanns saga
Titill í handriti

Hier Byriar Myrm|anz Søgv

Athugasemd

Bl. 10 autt að mestu til að tákna eyða í texta. Bl. 13v autt.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Skjaldarmerki með sverðlilju og kórónu efst // Ekkert mótmerki ( 1 , 3-4 , 7 , 10 ).

Blaðfjöldi
13 blöð (296 mm x 193 mm). Bl. 11-13 eru í 4to.
Tölusetning blaða

Upprunaleg blaðmerking 417-426.

Umbrot

  • Tvídálka (nema bl. 11-13).
  • Eyður fyrir upphafsstafi.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Bl. 11-13 innskotsblöð með texta sem fyllir upp í eyðu sem auðkennd er á bl. 10.

Band

Skinnband.

Eldra pappaband.

Fylgigögn

Seðill með hendi Árna Magnússonar.

Uppruni og ferill

Uppruni

Tímasett til um 1650 í Katalog I , bls. 152. Var áður hluti af stærri bók sem samkvæmt Jóni Sigurðssyni var skrifuð um 1640-1650 og innihélt einnig AM 181 a-f fol., AM 181 h fol. og AM 181 k-l fol. (sbr. JS 409 4to). Að auki voru í bókinni Elis saga, Flóvents saga og Jarlmanns saga, sem ekki er nú að finna í neinu þessara handrita (sbr. AM 477 fol.).

Ferill

Bókin sem handritið tilheyrði var í eigu Þorsteins Björnssonar prests á Útskálum og síðar Sigurðs Björnssonar lögmanns.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 6. maí 1997.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Tekið eftir Katalog I , bls. 152 (nr. 277). Kålund gekk frá handritinu til skráningar 5. janúar 1886. DKÞ skráði 10. apríl 2001. ÞÓS skráði vatnsmerki 26. júní 2020.

Viðgerðarsaga

Viðgert í mars til júní 1982 og var í nýlegu skinnbandi við skráningu í spjaldskrá (án dags.). Eldra pappaband fylgir. Nákvæm lýsing á ljósmyndun og viðgerð, ásamt lýsingu á kveraskiptingu, fylgdi frá Kaupmannahöfn.

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Höfundur: Loth, Agnete
Titill: , Om håndskrifter fra Vigur i Magnús Jónssons tid. Tre bidrag
Umfang: s. 92-100
Titill: , Bevers saga
Ritstjóri / Útgefandi: Sanders, Christopher
Umfang: 51
Titill: , Mírmanns saga
Ritstjóri / Útgefandi: Slay, Desmond
Umfang: 17
Titill: Hemings þáttr Áslákssonar,
Ritstjóri / Útgefandi: Fellows-Jensen, Gillian
Umfang: 3
Titill: Eiríks saga víðförla,
Ritstjóri / Útgefandi: Jensen, Helle
Umfang: 29
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Skårup, Povl
Titill: Tre marginalnoter om Erex saga, Gripla
Umfang: 6
Lýsigögn
×
Efni skjals
×
  1. Mírmanns saga

Lýsigögn