Skráningarfærsla handrits

AM 169 d fol.

Illuga saga Gríðarfóstra ; Ísland, 1625-1672

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-7v)
Illuga saga Gríðarfóstra
Titill í handriti

Søgu þättur af Jlluga | Grydar föſtra

Tungumál textans
íslenska

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Tveir turnar með tveimur egglaga gluggum ( 3-4, 7-8 ) // Mótmerki: Fangamark PH ( 2, 5-6 ).

Vatnsmerki 2. Aðalmerki: Skjaldarmerki Amsterdam // Ekkert mótmerki (fastur seðill fremst í handriti).

Blaðfjöldi
i + 8 + i blað (301-307 mm x 192-197 mm). Mest af bl. 7v er autt og allt bl. 8.
Tölusetning blaða

Blaðmerking með blýanti á neðri spássíu, 1-8, síðari tíma viðbót.

Kveraskipan

3 kver:

  • I: spjaldblað - fremra saurblað (eitt tvinn)
  • II: AM seðill - bl. 8 (eitt blað + 4 tvinn: seðill, 1+8, 2+7, 3+6, 4+5)
  • III: aftara saurblað - spjaldblað (eitt tvinn)

Umbrot
  • Eindálka.
  • Leturflötur er 230 mm x 120 mm
  • Línufjöldi er 23-24.
  • Eyður fyrir upphafsstafi.
Ástand
  • Blettótt, sérstaklega á spássíu.
  • Bl. 8v sérstaklega óhreint og dekkra en önnur blöð.
Skrifarar og skrift

Ein hönd, Jón Erlendsson, kansellíbrotaskrift.

Skreytingar

Eyður fyrir stóra upphafsstafi (ca. 3 línur). Aðrir upphafstafir eru skrifaðir af skrifara, eru 1-2 línur og eru blekdregnir skrautstafir.

Fyrsta lína oft skrifuð með stærri skrift.

Við lok texta er stafaflúr.

Band

Band frá 1982, bundið í Kaupmannahöfn áður en handritið kom til Íslands.

Spjöld eru klædd fínofnum striga.

Áður pappaband frá tíma Kålund með marmarapappír á spjöldum.

Fylgigögn
Fastur seðill (núverandi fremra saurblaðið) (301 mm x 193 mm) fremst með hendi Árna Magnússonar, en afgangur með sömu hendi: Þáttur af Illuga Gríðarfóstra. Með hendi síra Jóns í Villingahollti. Léður mér af Jóni Þorlákssyni 1769 og síðan seldur 1710. Var til forna í innbundinni bók. Pappír er hinn sami og í AM 169 a fol. og AM 169 b fol.

Uppruni og ferill

Uppruni

Skrifað á og af Jóni Erlendssyni og tímasett til 17. aldar í  Katalog I, bls. 141, en virkt skriftartímabil Jóns var c1625-1672. Var áður hluti af stærri bók (sbr. seðil). Í þeirri bók voru einnig AM 1 a fol., AM 9 fol., AM 139 fol., AM 156 fol., AM 169 a fol., AM 169 b fol., AM 192 fol. og AM 202 b fol.

Ferill

Árni Magnússon fékk handritið lánað hjá Jóni Þorlákssyni árið 1709 og keypti það af honum árið 1710 (sbr. seðil).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 10. október 1983.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Tekið eftir Katalog I, bls. 141 (nr. 252). Kålund gekk frá handritinu til skráningar 8. janúar 1886.

DKÞ skráði 20. mars 2001.

ÞÓS skráði 25. júní 2020.

EM skráði kveraskipan 20. júní 2023.

MJG fór yfir skráningu með gögnum frá BS, 13. febrúar 2024.

Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Negatíf örfilma frá október 1993 á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi (askja 394).

Notaskrá

Höfundur: Davíð Erlingsson
Titill: Illuga saga og Illuga dans, Gripla
Umfang: 1
Höfundur: Guðrún Ása Grímsdóttir, Þórður Jónsson í Hítardal
Titill: Ættartölusafnrit séra Þórðar Jónssonar í Hítardal I-II
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×

Lýsigögn