„Sagann af Eigle Einhendta“
Pappír með vatnsmerkjum.
Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Tveir turnar með tveimur egglaga gluggum (6-10, 12-14, 18, 21) // Mótmerki: Fangamark PH (1-5, 11, 15-17, 19, 22).
Síðari tíma blaðmerking í efri ytra horni 1-21 með svörtu bleki.
6 kver:
Með hendi Jóns Erlendssonar, kansellíbrotaskrift.
Eyður fyrir stóra upphafsstafi (3-4 línur). Minni upphafstafir blekdregnir skrautstafir.
Spássíugreinar hér og þar.
Band frá 1982.
Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk. Grófari dúkur á kili og hornum.Eldra band frá frá tíma bókavarðarins Jens Jacob Weber, c1772-1780. Pappaspjöld og kjölur klædd handunnum pappír. Titill og safnmark skrifað framan á kápu með dökk brúnu bleki. Á spjaldblöðum er prentað mál. Tveir límmiðar með safnmarki og hlaupandi númeri á kili.
Varðveitt með handritinu.
Skrifað á Íslandi af Jóni Erlendssyni og tímasett til 17. aldar í Katalog I , bls. 140, en virkt skriftartímabil Jóns var c1625-1672. Var áður hluti af stærri bók (sbr. seðil). Í þeirri bók voru einnig AM 1 a fol., AM 9 fol., AM 139 fol., AM 156 fol., AM 169 b fol., AM 169 d fol., AM 192 fol. og AM 202 b fol.
Árni Magnússon fékk handritið lánað hjá Jóni Þorlákssyni árið 1709 og keypti það af honum árið 1710 (sbr. seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 10. október 1983.
Viðgert og bundið í Kaupmannahöfn 1982. Eldra band fylgdi.