Skráningarfærsla handrits

AM 168 fol.

Sögubók

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-10v)
Egils saga einhenda og Ásmundar berserkjabana
Titill í handriti

Hier biriar Saugu af Eigle | hinum Einhendta og Aſmunde

Athugasemd

Samkvæmt eldri skrám var Hálfdanar saga Eysteinssonar áður á milli bl. 10 og 11 í þessu handriti en hún hefur verið skorin burt (sbr. seðil og AM 435 b fol., bl. 12r).

2 (11r-19v)
Sörla saga sterka
Titill í handriti

Saga af Sǫrla hinumm | sterka

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Skjaldarmerki Amsterdam ( 2 , 4 , 6-8 , 10-11 , 13-14 , 16 , 18 ) // Mótmerki: Fangamark PD ( 1 , 3 , 5 , 9 , 12 , 15 , 17 , 19 ).

Blaðfjöldi
19 blöð (322 mm x 215 mm).
Umbrot

Skrifarar og skrift

Brotaskrift.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Talsvert um spássíugreinar með hendi Þormóðs Torfasonar í fyrri hluta handritsins.

Band

Band frá 1976.

Spjöld og kjölur í eldra bandi klædd bókfelli úr kirkjulegu latnesku handriti.

Fylgigögn
Fastur seðill (197 mm x 119 mm) fremst með hendi Árna Magnússonar: Egils saga einhenda. Hálfdanar saga Eysteinssonar. Sörla saga sterka úr Núm. 18. Þetta exemplar á að rífast í sundur vegna þess sem Þormóður hefir skrifað á spássíurnar.

Uppruni og ferill

Uppruni

Tímasett til loka 17. aldar í Katalog I , bls. 139. Var áður hluti af stærri bók sem innihélt einnig AM 101 fol. og AM 147 fol.

Ferill

Bókin sem handritið tilheyrði var nr. XVIII í safni Þormóðs Torfasonar. Árni Magnússon fékk hana frá ekkju Þormóðs árið 1720 og tók í sundur (sbr. AM 435 b fol. og seðil í AM 147 fol.).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 12. maí 1976.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Tekið eftir Katalog I , bls. 139-140 (nr. 248). Kålund gekk frá handritinu til skráningar 7. janúar 1886. DKÞ skráði 19. mars 2001. ÞÓS skráði vatnsmerki 25. júní 2020.

Viðgerðarsaga

Viðgert og bundið af Birgitte Dall í mars 1976. Eldra band fylgdi.

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Höfundur: Jacobsen, Bent Chr.
Titill: , Om lovbøgernes kristendomsbalk og indledningskapitlerne i de yngre kristenretter
Umfang: s. 77-88
Titill: , Havarðar saga Ísfirðings
Ritstjóri / Útgefandi: Björn K. Þórólfsson
Umfang: 47
Titill: Fornaldar sögur Norðrlanda III.
Ritstjóri / Útgefandi: Rafn, C. C.
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×

Lýsigögn