„… allt Jökli í vald og þar með kóngdóm. Stýrði Jökull því allt til dauðadags. Átti hann mörg börn við Marsibila er tóku kóngdóm og ríki eftir hann.“
Og endar hér þennan Jökuls þátt.
Einungis niðurlag (þrjár línur í hdr.) sem krassað er yfir; þó læsilegt.
„Þáttur af Ormi Stórólfssyni.“
„Hængur hét maður son Ketils Naumdæla …“
„… hélt vel trú sína og lýkur svo hans sögu.“
„Hér byrjar sagan af Bárði Snæfellsás.“
„Dumbur hefur kóngur heitið. Hann réð fyrir hafsbotnum þeim er ganga af Risalandi í landsuður en fyrir sunnan gengur haf það sem nú er kallað Dumbshaf og kennt var við Dumb kóng og liggja þar mörg lönd smá og svo eyjar. Dumbur kóngur var risakyns í föðurætt sína og er …“
Einungis upphaf (fimm línur í hdr.) sem krassað er yfir; þó læsilegt.
Pappír með vatnsmerkjum.
Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Hjartarhöfuð // Ekkert mótmerki ( 4 ).
Blaðmerkt 1-5.
Eitt kver.
Pappaband (312 mm x 190 mm x 3 mm) er frá 1772-1780.
Safnmark og titill skrifað framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili.
Innanverð spjaldblöð eru klædd blöðum úr prentaðri bók.
Handritið er skrifað á Íslandi og tímasett til 17. aldar í Katalog I , bls. 134, en Arnór er fæddur um 1640 svo að þrengja má tímasetninguna til síðari hluta 17. aldar. Handritið var áður hluti af stærri bók sem innihélt einnig AM 123 fol., AM 163 h fol., AM 163 h fol. og líklega AM 167 fol..
Bókin sem handritið var tekið úr var í eigu Magnúsar Kortssonar en Árni Magnússon fékk hana frá Hákoni Hannessyni (sbr. seðil í AM 167 fol.).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 8. apríl 1974.
ÞÓS skráði 24. júní 2020.
VH skráði handritið samkvæmt TEIP5 reglum 9. janúar 2009; lagfærði í nóvember 2010,
DKÞ grunnskráði 31. október 2001,
Kålund gekk frá handritinu til skráningar 23. desember 1885 í Katalog I; bls. 134 (nr. 229).
Bundið af Matthiasi Larsen Bloch á árunum 1772-1780.