Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 164 b fol.

Víga-Glúms saga ; Ísland, 1650-1699

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-22v)
Víga-Glúms saga
Titill í handriti

Sagan af Víga-Glúmi.

Upphaf

Ingjaldur hét maður son Helga hins magra …

Niðurlag

… Það er og mál manna að Glúmur hafi verið best um sig allmargra manna hér á Íslandi.

Baktitill

Og lýkur hér saga Glúms.

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Skjaldarmerki með bjálkum, fjaðraskúfi og kóróna efst // Ekkert mótmerki ( 1 , 4-5 , 9 , 11-13 , 15-17 , 20 , 22 ).

Blaðfjöldi
i + 22 + i blöð (302 mm x 195 mm).
Tölusetning blaða

  • Upprunaleg blaðmerking 200-221.
  • Síðar blaðmerkt með blýanti 1-22.

Kveraskipan

7 kver:

  • I: spjaldblað - fylgigögn 1 (eitt tvinn + eitt blað)
  • II: bl. 1-6 (3 tvinn: 1+6, 2+5, 3+4)
  • III: bl. 7-12 (3 tvinn: 7+12, 8+11, 9+10)
  • IV: bl. 13-18 (3 tvinn: 13+18, 14+17, 15+16)
  • V: bl. 19-20 (1 tvinn: 19+20)
  • VI: bl. 21-22 (1 tvinn: 21+22)
  • VII: aftara saurblað - spjaldblað (eitt tvinn)

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 270-275 mm x 160 mm.
  • Línufjöldi er ca 39-41.
  • Strikað er fyrir innri og ytri spássíu.
  • Bendistafur V á spássíu vísar í vísu í texta. Vísuorð eru ekki sér um línu (sbr. t.d. blað 21r).
  • Griporð.
  • Sagan endar í totu (sjá blað 22v).

Ástand

  • Blöð eru blettótt og skítug (sjá t.d. blöð 4v og 14v).

Skrifarar og skrift

  • Ein hönd, skrifari er óþekktur. Fljótaskrift.

Skreytingar

  • Titill sögunnar og fyrsta lína textans eru með stærra letri en meginmálið. Blefylltir stafir.

  • Flúraður upphafsstafur með bogadregnu skrauti (sjá blað 1r).

  • Griporð eru oftast nær afmörkuð með pennastrikum (sjá t.d. 5v-7r).

Band

Band (310 mm x 220 mm x 8 mm) er frá 1975. Spjöld eru klædd fínofnum striga. Grófari strigi er á kili og hornum. Saumað á móttök. Saurblöð tilheyra þessu bandi.

Pappaband (306 mm x 201 mm x 4 mm) frá 1772-1780. Safnmark og titill skrifað framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili.

Handritið liggur í öskju með eldra bandi.

Fylgigögn

  • Seðill (60 mm x 197 mm) með hendi Árna Magnússonar: Víga-Glúms saga. Úr bók er ég fékk af Jóni Þorlákssyni, sýslumanni í Múlaþingi.
  • Laus miði með upplýsingum um forvörslu.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er skrifað á Íslandi og tímasett til síðari hluta 17. aldar í Katalog I , bls. 132. Það var áður hluti af stærri bók (sbr. seðil). Í þeirri bók voru einnig AM 163 e fol., AM 163 m fol., AM 163 n fol. og AM 181 i fol.

Ferill

Bókina sem handritið var tekið úr fékk Árni Magnússon frá Jóni Þorlákssyni sýslumanni (sbr. seðil).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 21. janúar 1976.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

EM uppfærði kveraskipan 20. júní 2023. ÞÓS skráði 24. júní 2020. VH skráði handritið samkvæmt TEIP5 reglum 7. janúar 2009; lagfærði í nóvember 2010,

DKÞ grunnskráði 31. október 2001,

Kålund gekk frá handritinu til skráningar 22. desember 1885 í Katalog I; bls. 132-133 (nr. 223).

Viðgerðarsaga

Viðgert og bundið af Birgitte Dall í maí 1975.

Bundið af Matthiasi Larsen Bloch á árunum 1772-1780. Það band fylgir í öskju með handritinu.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×

Lýsigögn