„Hér byrjar Bandamanna sögu.“
„Ófeigur hét maður er bjó í Miðfirði …“
„… hélst vinátta þeirra feðga með góðri frændsemi á meðan þeir lifðu báðir.“
Og lýkur svo Bandamanna sögu, og lýkur svo Bandamanna sögu (!). Endir.
Lokasetningin er tvítekin (sjá blað 7r). Niðurlag sögunnar er síðari viðbót; við skiptingu handritsins hefur blaðið sem texti niðurlagsins var á fylgt með upphafshluta næstu sögu (sjá: Uppruni, Spássíugreinar og aðrar viðbætur).
Eitt kver. Saurblöð eru hluti af bandinu.
Stór skrautstafur (O) á blaði 1r.
Band (290 mm x 192 mm x 6 mm) er frá 1880-1920.
Handritið er skrifað á Íslandi og tímasett til loka 17. aldar í Katalog I, bls. 132. Það var áður hluti af stærri bók sem innihélt einnig AM 159 fol., AM 163 f fol., AM 163 g fol. og líklega AM 164 e fol.
Bókina sem handritið var tekið úr fékk Árni Magnússon frá sr. Guðmundi Jónssyni á Helgafelli (sbr. seðil í t.d. AM 163 f fol.).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 23. október 1974.
Kålund gekk frá handritinu til skráningar 22. desember 1885 í Katalog I; bls. 132 (nr. 221), DKÞ grunnskráði 30. október 2001, VH skráði handritið samkvæmt TEIP5 reglum 6. janúar 2009; lagfærði í nóvember 2010. ÞÓS skráði 23. júní 2020.
Bundið á árunum 1880-1920.