Skráningarfærsla handrits
AM 159 fol.
Skoða myndirFinnboga saga ramma; Ísland, 1675-1700
Innihald
Finnboga saga ramma
„Hér byrjast sagan af Finnboga hinum ramma“
„Ásbjörn hét maður og var kallaður dettiás …“
„… bræður hans aðrir voru mjög í förum þar til að þeir staðfestu ráð sitt og þóttu allir mikilsháttar menn.“
„Endir Finnboga sögu.“
Lýsing á handriti
Pappír með vatnsmerkjum.
Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Skjaldarmerki Amsterdam // Ekkert mótmerki ( 3-4 , 7-8 , 11-13 , 17-19 , 21 , 23 , 27 , 30-32 , 34 ).
Blaðmerking með svörtu bleki á fimmta hverju blaði.
Blaðmerking með rauðu bleki 1-34.
3 kver.
- Kver I: blað 1r-12v, 6 tvinn.
- Kver II: blað 13r-20v, 4 tvinn.
- Kver III: blað 21r-34v, 7 tvinn.
- Eindálka.
- Leturflötur ca 240 mm x 145 mm.
- Línufjöldi ca 28.
- Í flestum tilfellum er markað fyrir innri og ytri spássíum; í sumum tilfellum hugsanlega með því að brotið er upp á blöð (sbr. blöð 7-8 til dæmis).
- Síðutitlar.
- Kaflaskipting: Kapituli 1-43.
Skrifað af Þórði Þórðarsyni; ung hönd (sbr. seðill), fljótaskrift.
Pappaband frá 1772-1780.
Seðill (164 mm x 106 mm) innan á fremra spjaldi með hendi skrifara Árna Magnússonar og hendi Árna sjálfs. „Úr bók er ég fékk af séra Guðmundi á Helgafelli, er með hendi Þórðar Þórðarsonar, þá hann var ungur. Finnboga ramma saga.“
Uppruni og ferill
Handritið er skrifað á Íslandi og er tímasett til loka 17. aldar í Katalog I, bls. 112.
Það var áður hluti af stærri bók sem innihélt einnig AM 163 f fol., AM 163 g fol., AM 163 s fol. og líklega AM 164 e fol.
Bókina sem handritið var tekið úr fékk Árni Magnússon frá sr. Guðmundi á Helgafelli (sbr.seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 27. mars 1974.
Aðrar upplýsingar
Kålund gekk frá handritinu til skráningar í desember 1885, Katalog I; bls. 112 (nr. 195), DKÞ grunnskráði 1. október 2001, VH skráði handritið samkvæmt TEIP5 reglum, 5. desember 2008; lagfærði í nóvember 2010. ÞÓS skráði 22. júní 2020.
Bundið af Matthiasi Larsen Bloch á árunum 1772-1780.
- Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
- Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
Notaskrá
Höfundur | Titill | Ritstjóri / Útgefandi | Umfang |
---|---|---|---|
Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling | ed. Kristian Kålund | ||
Hálfs saga ok Hálfsrekka, | ed. Hubert Seelow | 1981; 20: s. 214 p. | |
Desmond Slay | The manuscripts of Hrólfs saga kraka, | 1960; XXIV |