Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 157 e fol.

Hrafnkels saga Freysgoða ; Noregur, 1690-1697

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-14v (bls. 1-28))
Hrafnkels saga Freysgoða
Titill í handriti

Sagan af Hrafnkeli goða, syni Hallfreðs landnámsmanns

Upphaf

Það var á dögum Haralds konungs hins hárfagra, Halfdanarsonar hins svarta …

Niðurlag

… áttu þeir goðorðið saman og þóttu miklir menn fyrir sér og lýkur hér frá Hrafnkeli að segja.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
14 blöð (316 mm x 202 mm).
Tölusetning blaða

  • Upprunaleg blaðsíðumerking: 1-28.
  • Síðari tíma blaðmerking með rauðu bleki: 1-14.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 265 mm x 145 mm.
  • Línufjöldi er ca 29-31.
  • Markað hefur verið fyrir innri og ytri spássíu blaða.
  • Griporð á blaði 8v.

Skrifarar og skrift

Með hendi Ásgeirs Jónssonar; kansellískrift.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Spássíutilvísanir (sbr. 8v-9r).

Band

Pappaband (319 null x 206 null x 6 null) er frá 1772-1780. Blár safnmarksmiði á kili.

Innanverð spjaldblöð eru klædd blöðum úr prentaðri bók.

Fylgigögn

  • Miði með upplýsingum um forvörslu.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið var skrifað í Noregi (Stangarlandi) og er tímasett frá ársbyrjun 1690 til vors 1697 í umfjöllun Más Jónssonar um skrifarann Ásgeir Jónsson (sbr. Már Jónsson 2009: 282-297 ). Það er tímasett til um 1700 í Katalog I , bls. 110, en virkt skriftartímabil skrifara var ca 1686-1707.

Handritið er uppskrift eftir pappírshandriti sem var í eigu Þormóðs Torfasonar (sbr. AM 435 b 4to, blað 7r).

Það var áður hluti af stærri bók sem innihélt einnig AM 149 fol., AM 157 g fol., AM 157 a fol., AM 154 fol., AM 157 c fol., AM 140 fol., AM 164 k fol., AM 150 fol., AM 770 a 4to og AM 157 d fol. (sbr. AM 435 b 4to, blað 6v-7r).

Ferill

Bókin sem handritið tilheyrði var nr. XIV fol. í safni Þormóðs Torfasonar. Árni Magnússon fékk hana frá ekkju Þormóðs árið 1720 og tók í sundur (sbr.AM 435 b 4to, blað 6v-7r).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 10. desember 1993.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Kålund gekk frá handritinu til skráningar 3. desember 1885, Katalog I; bls. 110 (nr. 190), DKÞ grunnskráði 1. október 2001, VH skráði handritið samkvæmt TEIP5 reglum 2. desember 2008; lagfærði í nóvember 2010.

Viðgerðarsaga

Viðgert af Mette Jacobsen í október-nóvember 1993.

Viðgert af Birgitte Dall í mars 1974.

Bundið af Matthiasi Larsen Bloch á árunum 1772-1780.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Már Jónsson
Titill: Heimtur: Ritgerðir til heiðurs Gunnari Karlssyni sjötugum, Skrifarinn Ásgeir Jónsson frá Gullberaströnd í Lundarreykjadal
Ritstjóri / Útgefandi: Guðmundur Jónsson, Helgi Skúli Kjartansson, Vésteinn Ólason
Umfang: s. 282-297
Lýsigögn
×

Lýsigögn