Skráningarfærsla handrits
AM 151 fol.
Skoða myndirGrettis saga; Ísland, 1635-1645
Innihald
„Þrótt og þrek bar Grettir, þrátt hann ófrið átti …“
„… breyttra vísna neytti.“
Saga Grettis hefst hér á vísu. Í AM 163 b fol. er vísa með samskonar upphafi viðbót við niðurlag sögunnar þar.
„[Ö]nundur hét maður, son Ófeigs bullufóts …“
„… þó að sagan sé ófróðlega saman sett en þeir þættir ei ritaðir svo sem merkilegir þykja, en það sem ei er ritað mega þeir saman setja sem kunna, en skrá þetta oft í burt og ljúkum vér svo sögu Grettis Ásmundssonar.“
„Til Lesarans.“
„Þessi fyrrskrifuð Grettis saga er skrifuð eftir þeirri sögu vér höldum herra Sturla Þórðarson samsett hafa …“
„… og er slíkt um þær allar gömlu bækur að segja.“
Eftirmáli um skáldskap Sturlu Þórðarsonar og tímatal sögunnar.
„Hér daterast ævi og aldur Grettis hins sterka.“
„Anno 987 var fæddur Grettir hinn strerki á Bjargi í Miðfirði“
„Aldur Þorsteins þá 67 vetur.“
Lýsing á handriti
Pappír með vatnsmerkjum.
Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Skjaldarmerki, skipt niður í 5 hluta með ýmsum dýramyndum. Miðjuhluti þess skiptist í 2 hluta IS5000-02-0151_59v // Ekkert mótmerki ( 1 , 5-7 , 10-12 , 16 , 20 , 22-26 , 29-30 , 37-41 , 44 , 46-47 , 49-51 , 53 , 57-60 ).
Átta kver.
- Kver I: blöð 1r-8v, 4 tvinn.
- Kver II: blöð 9r-16v, 4 tvinn.
- Kver III: blöð 17r-24v, 4 tvinn.
- Kver IV: blöð 25r-32v, 4 tvinn.
- Kver V: blöð 33r-40v, 4 tvinn.
- Kver VI: blöð 41r-48v, 4 tvinn.
- Kver VII: blöð 49r-56v, 4 tvinn.
- Kver VIII: blöð 57r-60v, 2 tvinn.
- Sumstaðar eru blettir á blöðum (sjá t.d. blöð 16r og 24r).
- Eindálka.
- Leturflötur er ca 250 mm x 147 mm.
- Línufjöldi er ca 46-47.
- Eyða er fyrir fyrsta upphafsstaf á blaði 1r.
- Kaflanúmer eru á spássíum blaða 1r-60r og bendistafur „v.“ auðkennir vísur.
- Með hendi Jóns Gissurarsonar (sbr. seðil).
- Léttiskrift.
- Blað 60v er með hendi Þórðar Þórðarsonar skrifara Árna Magnússonar.
- Athugasemdir um tímatal o.fl. á spássíum.
Band (288 mm x 210 mm x 20 mm) er frá 1975.
Spjöld eru klædd fínofnum striga, grófari strigi er á kili og hornum.
Saurblöð tilheyra þessu bandi.
Saumað á móttök.
Band frá 1700-1730. Spjöld og kjölur klædd bókfelli úr kirkjulegu latnesku handriti.
- Bókfellið er með lýsingum.
- Seðill (114 mm x 146 mm), milli saurblaðs og blaðs 1, með hendi Árna Magnússonar: „Grettis saga með hendi Jóns Gissurssonar. Úr bók (eldri en 1646) er ég fékk af séra Högna Önundasyni.“
- Laus miði með upplýsingum um forvörslu.
Uppruni og ferill
Handritið er skrifað á Íslandi. Jón Gissurarson er talinn hafa skrifað það fyrir 1646 (sbr. seðil). Það er tímasett til fyrri hluta 17. aldar í Katalog I, bls. 104. Þessi uppskrift er talin runnin frá AM 152 fol. (Katalog I, bls. 105).
Handritið var upprunalega hluti af stærri bók sem innihélt einnig AM 11 fol., AM 50 a fol., AM 164 a fol., AM 165 a fol., AM 165 b fol., AM 165 c fol., AM 165 d fol., AM 165 e fol., AM 165 g fol., AM 165 h fol., AM 165 i fol., AM 165 k fol., AM 165 l fol., AM 165 m fol., AM 202 a fol., AM 202 g fol. og AM 202 i fol.
Bókina sem handritið tilheyrði fékk Árni Magnússon frá sr. Högna Ámundasyni (sbr. seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 10. júní 1975.
Aðrar upplýsingar
Kålund gekk frá handritinu til skráningar í desember 1885 Katalog I; bls. 104-105 (nr. 180), DKÞ skráði 28. september 2001, VH skráði handritið samkvæmt TEIP5 reglum 26. nóvember 2008, yfirfór handritið í september 2009; lagfærði í nóvember 2010. ÞÓS 19. júní 2020.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í febrúar 1975. Eldra band fylgir.
Bundið í Kaupmannahöfn 1700-1730.
- Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
- Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
Notaskrá
Höfundur | Titill | Ritstjóri / Útgefandi | Umfang |
---|---|---|---|
Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling | ed. Kristian Kålund | ||
Susan Miriam Arthur | „The importance of marital and maternal ties in the distribution of Icelandic manuscripts from the middle ages to the seventeenth century“, Gripla | 2012; 23: s. 201-233 | |
Guðvarður Már Gunnlaugsson | „"Grettir vondum vættum, veitti hel og þreytti". Grettir Ásmundarson og vinsældir Grettis sögu“, Gripla | 2000; 11: s. 37-78 | |
Hreinn Benediktsson | Linguistic studies, historical and comparative | ||
Desmond Slay | The manuscripts of Hrólfs saga kraka, | 1960; XXIV |