„Hér byrjast saga sú er Eyrbyggja heitir“
Pappír með vatnsmerkjum.
Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Dárahöfuð 1, með 7 litlum bjöllum á kraga, Hermes kross, 3 stórir hringir á staf og 2 bókstafir fyrir neðan ( 2 ) // Mótmerki: Stakir bókstafir 1, virðist vera PD ( 3 ).
Vatnsmerki 2. Aðalmerki: Dárahöfuð 2, með 7 meðalstórum bjöllum á kraga, Hermes kross, 3 stórir hringir ( 6-7 , 10-11 , 16-19 , 22 , 24 , 26-27 , 30-31 , 34-37 , 39 , 41 , 48-51 ) // Mótmerki: Stakir bókstafir 2, keðja á milli stafa, virðist vera CD ( 4-5 , 8-9 , 12-15 , 20-21 , 23 , 25 , 28-29 , 32-33 , 38 , 40 , 42-47 ).
Vatnsmerki 3. Aðalmerki: Dárahöfuð 3, með 7 litlum bjöllum á kraga, stór Hermes kross, 3 stórir hringir á staf ( 56-62 , 64 , 70 , 72 , 74-79 , 84-87 , 92-95 , 100-103 , 109 , 112-113 , 115 , 120-123 , 128-134 ) // Mótmerki: Óflokkanlegt vatnsmerki, virðast vera bókstafir PL ( 52-55 , 63 , 65-69 , 71 , 73 , 83 , 88-91 , 96-99 , 104-108 , 110-111 , 114 , 116-119 , 124-127 , 135-137 , blöð 90-91 eru nokkuð óskýr í handriti).
20 kver:
Ein hönd.
Spjöld og kjölur klædd bókfelli úr kirkjulegu latnesku handriti.
Seðill (143 mm x 162 mm) með hendi Árna Magnússonar: „Laxdæla saga. Er víða öðruvísi en almennilegar og sums staðar rétt þar sem frá hinum víkur. Hún er óefað deriveruð úr fragmento membraneo in 4to, sem ég á, hvar á er framan af Eyrbyggja sögu og úr Grettis sögu. Þetta exemplar er með hendi séra Jóns Ólafssonar í Fellsmúla. Eyrbyggja saga með sömu hendi séra Jóns Ólafssonar.“
Skrifað af sr. Jóni Ólafssyni í Fellsmúla, Rangárvallasýslu (sbr. seðill). Tímasett til loka 17. aldar í Katalog I , bls. 89.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 27. mars 1974.
Í láni vegna rannsókna á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn frá 16. nóvember 1977.