„Hier Byriaſt su Saga er Laxdæla er kỏllud“
„Hier Byriaſt su Saga er Eyrbyggia hejter“
Einungis upphaf í 7 línum, blað límt yfir. Varðveitt í AM 163 h fol.
Pappír með vatnsmerkjum.
Aðalmerki 1 (par) (IS5000-02-0123_10v), bl. 10, 15, 18, 26, 38, 44-45, 48, 51, 59, 65-68, 70, 74-75. Stærð: 129 x 77 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 48 mm.
Ekkert mótmerki.
Notað í 1664.12 kver:
Hvítt blað límt yfir 7 línur á bl. 81v.
Ein hönd, brotaskrift.
Nótur á bókfelli í gömlu bandi.
Band frá 1911-1913. Bókfell á kili og hornum, pappírsklæðning.
Band frá 1700-1730. Spjöld og kjölur klædd bókfelli úr latnesku helgisiðahandriti með nótum (nú í Acc 7).
Fastur seðill (175 mm x 152 mm með hendi Þórðar Þórðarsonar, ritara Árna Magnússonar: „Laxdæla saga. Eyrbyggja saga. Með hendi Arnórs Eyjólfssonar á Flókastöðum úr bók frá Árbæ sem ég fékk af Hákoni Hannessyni“. Á seðlinum er líka athugasemd Th[orkelin?] á latínu um útvegun handritsins: „Eyrbyggja hujus libri eodem est cum 124 hujus formd sed negligentius scripts, ac plus interpolata.“
Skrifað 1664 af Arnóri Eyjólfssyni á Flókastöðum (sbr. bl. 47r og seðil). Var áður hluti af stærri bók (sbr. seðil). Í þeirri bók voru einnig AM 163 h alfa fol., AM 164 f fol., AM 163 h beta fol. og líklega AM 167 fol..
Bókin sem handritið var tekið úr var í eigu Magnúsar Kortssonar í Árbæ (sbr. seðil og seðil í AM 167 fol.), en Árni Magnússon fékk hana frá Hákoni Hannessyni (sbr. seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 5. febrúar 1974.
Í láni vegna rannsókna á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn frá 16. nóvember 1977.
Bundið af Hans Gylling 1911-1913.
Bundið í Kaupmannahöfn 1700-1730.