Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 121 fol.

Sturlunga saga ; Ísland, 1630-1675

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-78v)
Sturlunga saga
Athugasemd

Útdráttur skyldur þeim sem er í AM 119 fol., með þátta- og kaflaskiptingu að hluta og án Árna sögu biskups.

1.1 (1r-4v)
Íslendingasagan mikla, í tíu þætti sundurdeild og niðurköfluð. Fyrsti þáttur. Af Hafliða Mássyni og Þorgils Oddasyni. 1. kap.
Titill í handriti

Íslendingasagan mikla, í tíu þætti sundurdeild og niðurköfluð. Fyrsti þáttur. Af Hafliða Mássyni og Þorgils Oddasyni. 1. kap.

Upphaf

Hjör konungur, son Hálfs konungs …

Niðurlag

… og andaðist anno 1130.

1.2 (4v-5v)
Annar þáttur hljóðandi um ættartölur ýmsra höfðingja á Íslandi fyrri alda.
Titill í handriti

Annar þáttur hljóðandi um ættartölur ýmsra höfðingja á Íslandi fyrri alda.

Upphaf

[B]örn þeirra Þorgils Oddasonar og Kolfinnu Hallsdóttur …

Niðurlag

… er þar bjó síðan.

1.3 (5v-8v)
Þriðji þáttur af Sturlu Þórðarsyni
Titill í handriti

Þriðji þáttur af Sturlu Þórðarsyni

Upphaf

[Þ]órður Gilsson faðir Sturlu …

Niðurlag

… um bróður hans.

Athugasemd

Texti blaðs 8 hefur skerst lítillega.

1.4 (8v-15v)
Fjórði þáttur af Guðmundi hinum dýra
Titill í handriti

Fjórði þáttur af Guðmundi hinum dýra

Upphaf

Guðmundur hét bóndi Eyjólfsson …

Niðurlag

… er þar bjó síðan.

1.5 (15v-24v)
Fimmti þáttur af Þorvaldi Vatnsfirðingi
Titill í handriti

Fimmti þáttur af Þorvaldi Vatnsfirðingi

Upphaf

[Þ]ar tekur nú til frásagnar …

Niðurlag

… og skildu við það.

1.6 (24v-29v)
Sjötti þáttur af Þorvaldssonum, Þórði og Snorra.
Titill í handriti

Sjötti þáttur af Þorvaldssonum, Þórði og Snorra.

Upphaf

[D]rottinsdaginn eftir brennu Þorvalds …

Niðurlag

… hafði goldið honum.

Athugasemd

Hér eftir er í handriti ekki um númeraða þátta- eða kaflaskiptingu að ræða.

1.7 (29v-45r)
Sjöundi þáttur af Órækju Snorrasyni.
Titill í handriti

Sjöundi þáttur af Órækju Snorrasyni.

Upphaf

[Þ]etta vor sem nú var frá sagt …

Niðurlag

… að draga saman vináttu þeirra frænda, var það og auðvelt.

Athugasemd

Skriftin breytist eða annar skrifari er að verki á blöðum 34r-45r og eftir blað 34v og handritið út í gegn eru kaflar ekki lengur númeraðir; skrifari skilur þó eftir eyður fyrir slíkt við kaflaskil.

Þáttaskil eru greinileg á blaði 45r þó upphaf næsta þáttar á blaði 45v sé án fyrirsagnar.

1.8 (45v-64r)
Enginn titill
Upphaf

[E]inum vetri vetri (!) eftir lát Snorra Sturlasonar …

Niðurlag

… og skildust þeir við svo búið.

Athugasemd

Engin fyrirsögn.

Skriftarlag breytist aftur á blöðum 45v-78v.

1.9 (64r-78v)
Af Þorgils skarða Böðvarssyni, Þórðarsonar, Sturlusonar.
Titill í handriti

Af Þorgils skarða Böðvarssyni, Þórðarsonar, Sturlusonar.

Upphaf

[B]öðvar bjó á Stað, Þórðarson …

Niðurlag

… hér á Íslandi sat Gissur jarl heima á Stað.

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Akkeri // Ekkert mótmerki ( 189 , 192 , 195 , 201-207 , 209 , 214-216 , 220 , 222 , 225-227 , 237 , 240 , 242-243 , 246-247 , 249 , 252-253 , 255 , 258-259 , 261 , 265-266 ).

Vatnsmerki 2. Aðalmerki: Sverðlilja // Ekkert mótmerki ( 229 , 232 , 234 ).

Blaðfjöldi
i + 78 + i blöð (297 mm x 196 mm). Blað 78v er að mestu autt.
Tölusetning blaða

  • Eldri blaðmerking: 189-266.

Kveraskipan

12 kver:

  • I: spjaldblað - fylgigögn 1 (eitt tvinn + eitt blað: spjaldblað+fremra saurblað 1, fylgigögn 1)
  • II: bl. 1-8 (4 tvinn: 1+8, 2+7, 3+6, 4+5)
  • III: bl. 9-16 (4 tvinn: 9+16, 10+15, 11+14, 12+13)
  • IV: bl. 17-24 (4 tvinn: 17+24, 18+23, 19+22, 20+21)
  • V: bl. 25-32 (4 tvinn: 25+32, 26+31, 27+30, 28+29)
  • VI: bl. 33-40 (4 tvinn: 33+40, 34+39, 35+38, 36+37)
  • VII: bl. 41-48 (4 tvinn: 41+48, 42+47, 43+46, 44+45)
  • VIII: bl. 49-56 (4 tvinn: 49+56, 50+55, 51+54, 52+53)
  • IX: bl. 57-64 (4 tvinn: 57+64, 58+63, 59+62, 60+61)
  • X: bl. 65-74 (5 tvinn: 65+74, 66+73, 67+72, 68+71, 69+70)
  • XI: bl. 75-78 (2 tvinn: 75+78, 76+77)
  • XII: aftara saurblað 1 - spjaldblað (eitt tvinn)

Umbrot

  • Tvídálka.
  • Sumstaðar er strikað fyrir dálkum og spássíum með bleki eins og t.d. á rekto hliðum blaða 9r-15r.

    Víða annars staðar má greina línur sem hugsanlega hafa verið dregnar með beini til afmörkunar dálka og spássía, sbr. t.d. á blaði 31v.

  • Leturflötur er ca 245-270 mm x 150-170 mm og leturflötur hvors dálks er ca 245-270 null x 75-85 null. Innri dálkar eru að jafnaði breiðari en þeir ytri.
  • Eyður fyrir upphafsstafi (sjá t.d. blöð 1v-2r).
  • Eyður fyrir þáttamerkingar og kaflanúmer (sjá t.d. blöð 45v og 64r).
  • Griporð eru víðast hvar (sjá t.d. blöð 15v-16r og 64v-65r).

Ástand

  • Blöðin eru víða trosnuð á jöðrum og sumstaðar hafa bæði innri og ytri spássíur verið styrktar (sbr. 25r og 33r).
  • Texti sést víða í gegn (sjá t.d. 29r-30v).
  • Blekklessur eru t.d. á blaði 30r.
  • Sumstaðar eru blettir á blöðum; bæði á textafleti (án þess þó að skemma textann) og spássíum (sbr. 32r-v og 74r-v).

Skrifarar og skrift

  • Með hendi Þorsteins Björnssonar á Útskálum.
  • Fljótaskrift. Skrift á blöðum 34r-45r er með öðru bleki og hallar öfugt við fyrri skrift; hún er settari en þó með fljótaskriftareinkennum (h, s, r…).
  • Skriftarlag er sömuleiðis með öðru móti á blöðum 45v-48v og eitthvað áfram.

Skreytingar

  • Fyrirsagnir og kaflanúmer textans eru víðast með stærra letri en meginmálið (sjá blöð 4v-5r og 5v-6r).

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Handritið er merkt sem Compendium B á blaði 1r með hendi frá 18. öld.

Band

Band frá 1974 (300 null x 223 null x 23 null). Pappaspjöld eru klædd fínofnum líndúk. Grófari dúkur er á kili og hornum, saumað á móttök.

Í eldra bandi voru spjöld og kjölur klædd bókfelli úr kirkjulegu latnesku handriti.

Fylgigögn

  • Fastur seðill (156 mm x 120 mm með hendi Árna Magnússonar: 1709 16. novembris. Ólafi Einarssyni send til láns. Sturlunga saga folio með smárri skrift úr bók séra Þorsteins á Setbergi. Hún er aftur komin, kannski hann hafi látið uppskrifa úr henni. Er partur úr bók séra Þorsteins Björnssonar er síðar átti Sigurður Björnsson lögmaður.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er skrifað á Íslandi og tímasett til 17. aldar í Katalog I , bls. 83, en virkt skriftartímabil Þorsteins Björnssonar var ca 1630-1675. Það var áður hluti af stærri bók (sbr. seðil), þar blöð 189-266. Í þeirri bók voru einnig AM 158 fol., AM 181 a-h fol., AM 181 k-l fol. og AM 204 fol. (sbr. JS 409 4to).

Ferill

Bókin sem handritið tilheyrði var í eigu skrifarans, sr. Þorsteins Björnssonar, og síðar Sigurðar Björnssonar lögmanns (sbr. seðil). Árni Magnússon tók bókina í sundur og lánaði Ólafi Einarssyni þennan hluta árið 1709 (sbr. seðil).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 17. apríl 1974.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Kålund gekk frá handritinu til skráningar 6. nóvember 1885 Katalog I , bls. 83 (148), DKÞ skráði 13. desember 2001, VH skráði handritið skv. TEIP5 reglum 17. febrúar 2009; lagfærði í nóvember 2010 ÞÓS skráði vatnsmerki 12. júní 2020. EM lagfærði kveraskipan 12. júní 2023.

Viðgerðarsaga

Viðgert og bundið af Birgitte Dall í mars 1974. Eldra band fylgir.

Gömul viðgerð, pappírsstrimlar límdir á blaðkanta.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Negatíf filma og negatíf örfilma frá 1995 á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi (öskjur 423 og 419).

Notaskrá

Titill: , Mírmanns saga
Ritstjóri / Útgefandi: Slay, Desmond
Umfang: 17
Titill: Hemings þáttr Áslákssonar,
Ritstjóri / Útgefandi: Fellows Jensen, Gillian
Umfang: III
Höfundur: Guðrún Ása Grímsdóttir
Titill: Heimkynni uppskrifta Sturlunga sögu, Skjöldur
Umfang: 11
Höfundur: Guðrún Ingólfsdóttir
Titill: Af Þóru Þorsteinsdóttur handritaskrifara, Kona kemur við sögu
Umfang: s. 167-168
Titill: , Byskupa sögur
Ritstjóri / Útgefandi: Jón Helgason
Umfang: 13:1
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Titill: , Árna saga biskups
Ritstjóri / Útgefandi: Þorleifur Hauksson
Umfang: II
Titill: STUAGNL, Kirialax saga
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Umfang: LXIII
Titill: Valla-Ljóts saga, STUAGNL
Ritstjóri / Útgefandi: Jónas Kristjánsson
Umfang: LXIII
Titill: Sturlunga saga Including the Islendinga Saga of Lawman Sturla Thordsson and other Works
Ritstjóri / Útgefandi: Guðbrandur Vígfússon
Umfang: I

Lýsigögn