Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 113 f fol.

Íslendingabók ; Ísland, 1650-1699

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1v-7v)
Íslendingabók
Titill í handriti

Schedæ Ara prests fróða

Athugasemd

Handrit af B gerð að mati Árna Magnússonar, skrifað eftir AM 113 a fol. (sbr. seðil).

Tungumál textans
íslenska
1.1 (1v-2r)
Formáli
Upphaf

[Í]slendingabók gjörða eg fyrst biskupum vorum …

Niðurlag

… að öllum Norvegi.

Athugasemd

Fyrir neðan formálann og á undan meginmálinu er efnisyfirlit.

Efnisorð
1.2 (2r-7r)
Um Íslandsbyggð
Titill í handriti

Incipit libellus Islandorum.

Upphaf

[Í]sland byggðist fyrst úr Norvegi á dögum Haralds hins hárfagra Halfdanarsonar …

Niðurlag

… Hér lýkst sjá bók.

Efnisorð
1.3 (7r-7v)
Ættartölur
Efnisorð
1.3.1 (7r-7v)
Kyn biskupa Íslendinga og ættartala
Titill í handriti

Þetta er kyn biskupa Íslendinga og ættartala

Upphaf

Ketilbjörn landnámsmaður …

Niðurlag

… Ketils er nú er biskup að Hólum næstur Jóhanni.

Efnisorð
1.3.2 (7v-7v)
Nöfn langfeðga Ynglinga og Breiðfirðinga
Titill í handriti

Þessi eru nöfn langfeðga Ynglinga og Breiðfirðinga

Upphaf

[I]ngvi Tyrkjakonungur …

Niðurlag

… föður Brands og Þorgils föður míns en eg heitir(!) Ari.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Skjaldarmerki með ljóni, umlykur tvöfaldan ramma // Ekkert mótmerki ( 3, 4, 6 ).

Vatnsmerki 2. Aðalmerki: Óflokkanlegt vatnsmerki // Ekkert mótmerki ( 2 ).

Blaðfjöldi
i + 7 + ii blöð (300 mm x 203 mm). Blað 1r er autt og blað 7v er autt að hálfu.
Tölusetning blaða

  • Síðari tíma blaðmerking, 1-7.

Kveraskipan

1 kver: 4 tvinn + 5 blöð (fremra spjaldblað+aftara spjaldblað, fremra saurblað+aftara saurblað, bl. 1, fylgigögn 1, fylgigögn 2, bl. 2, 3, 4+7, 5+6)

Umbrot

  • Eindálka.
  • Línufjöldi er 34-37.
  • Eyður fyrir upphafsstafi (2-3 línur) eru víða (sbr. t.d. á blaði 2v).
  • Leturflötur afmarkaður með þurroddi á ytri spássíu.

Ástand

  • Rakablettir á blöðum.
  • Bleksmitun.
  • Það er vatnsblettur á efra ytra horni allra blaða, einnig saurblaða. (Svipaðan blett má sjá á efra horni jaðars í AM 113 f fol. og AM 113 d fol.).
  • Bl. 3v-4r og sérstaklega bl. 7v eru dekkri vegna óhreininda. Litabreytingin gefur til kynna hvar upprunalegu kverin voru staðsett og að bl.7v hafi verið aftast í handritinu.

Skrifarar og skrift

Með hendi Þorsteins Eyjólfssonar (sbr. seðil); blendingsskrift.

Blað 1v er viðbót með annarri hendi.

Skreytingar

Minni upphafstafir skrifaðir með stærra letri.

Sumar fyrirsagnir skrifaðar með stærra letri.

Litlir bókahnútar við enda málsgreinar.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Band

  • Pappaband (298 mm x 200 mm x 3 mm) frá 1772-1780. Safnmark og titill eru skráð á fremra kápuspjald; blár safnmarksmiði á kili.

  • Handritið er í öskju með AM 113 b-k fol.

Fylgigögn

Tveir fastir seðlar með hendi Árna Magnússonar:

  • Seðill 1 (163 mm x 104 mm): Ara fróða Magnúsar í Bræðratungu segist Þorsteinn Eyjólfsson skrifað hafa eftir hendi séra Jóns í Villingaholti. Man ei glöggt hvaðan verið hafi, nema ef kunni verið hafa í bók Þorbjargar Vigfúsdóttur. Non est: Are Magnusarer progenies Codicis B. non vero A. Þetta exemplar stóð aftan við Sæmundar Eddu.
  • Seðill 2 (152 mm x 120 mm): prave scriptum aliqvotes deest semel linea. þennan draum pro þann, etc.

Aftan á öðrum seðlinum er brot úr texta með ungri hendi Árna af staðfestingu Kristjáns fjórða á Býjaskerjadómi.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er skrifað á Íslandi (sbr. seðil) og tímasett til síðari hluta 17. aldar í Katalog I , bls. 76-77.

Ferill

Magnús Sigurðsson í Bræðratungu hefur átt handritið (sbr. seðil).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 8. apríl 1974.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Kålund gekk frá handritinu til skráningar 30. október 1885 Katalog I, bls. 76-77 (nr. 137), DKÞ grunnskráði 21. nóvember 2001, VH skráði handritið samkvæmt TEIP5 reglum 6. febrúar 2009; lagfærði í nóvember 2010. ÞÓS skráði 8. júní 2020. EM skráði kveraskipan 20. júní 2023. MJG uppfærði skráningu með gögnum frá BS, 7. febrúar 2024.

Viðgerðarsaga

Viðgert af Birgitte Dall í nóvember 1971.

Bundið af Matthiasi Larsen Bloch á árunum 1772-1780.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×

Lýsigögn