„Schedæ Ara prests fróða“
Árni Magnússon nefndi þetta eintak A og áleit það bestu fáanlega uppskrift. Hann taldi Jón Erlendsson hafa skrifað það fyrir Brynjólf Sveinsson biskup eftir glötuðu skinnhandriti, eins og AM 113 a fol. sem hann nefndi B (sbr. seðil 2).
„Íslendingabók gjörða ég fyrst biskupum vorum …“
„… en ég heiti Ari.“
Pappír með vatnsmerkjum.
Aðalmerki 1: Tveir turnar með tveimur gluggum (IS5000-02-0113b_6), bl. 6, 10. Stærð: 59 x 47 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 56 mm.
Aðalmerki 1 (par) (IS5000-02-0113b_7), bl. 7, 8, 9. Stærð: 58 x 44 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 57 mm.
Notað frá 1625 til 1672 .Handritið hefur verið blaðmerkt síðar, 1-10.
4 kver:
Skrifað af Jóni Erlendssyni, kansellíbrotaskrift.
Eyður fyrir stóra upphafsstafi (2 línur). Minni upphafstafir eru smá skreyttir.
Fyrirsagnir og fyrsta lína oft skrifaðar í stærri kansellíbrotaskrift.
Jaðar er sums staðar litaður rauður.
Spássíugreinar og lesbrigði úr AM 113 a fol. með hendi Árna Magnússonar frá um 1690 (Már Jónsson 1998). Skrift Árna er á viðgerðum við innri spássíu, og því má ætla að viðgerðir hafi verið gerðar á hans tíma.
Kaflanúmer eru ytri spássíu.
Band frá nóvember 1971 (298 mm x 212 mm x 14 mm). Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk. Grófari dúkur á kili og hornum. Saumað á móttök. Saurblöð tilheyra þessu bandi.
Fjórir fastir seðlar fremst með hendi Árna Magnússonar með upplýsingum um uppruna, feril o.fl.
Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til um 1650 í Katalog I , bls. 74, en virkt skriftartímabil skrifara var ca 1625-1672.
Handritið var áður hluti af stærri bók (sbr. seðil). Í þeirri bók voru einnig blöð sem nú eru í AM 13 fol., AM 34 II fol., AM 49 fol., AM 148 fol., AM 155 fol. og AM 185 fol. (Agnete Loth 1960 og Jón Helgason 1970). AM 113 c fol. var sett í bókina í stað b (sbr. seðil í AM 113 c fol.).
Árni Magnússon fékk handritið að gjöf frá Þórði Jónssyni, sem skar það framan úr bók Þorbjargar Vigfúsdóttur, föðursystur sinnar (sbr. seðil 2r). Í 1730 var það hluti af No. 113 in fol. (sbr. AM 456 fol., 3v og AM 477 fol., 5v).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 8. apríl 1974.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í nóvember 1971.
Bundið af Otto Ehlert á árunum 1880-1920? Það band fylgir ekki.
Gömul viðgerð á bl. 1.