Fornmannasögur Norðurlanda, fyrsta bindi. Skrifaðar eftir gömlum bókum MDCCCLXXXIV (saurblað).
Pappír.
Neðst á titilsíðunni er skrifað með annarri hendi: „Af Magnúsi Jónssyni hreppstjóra að Tjaldanesi, Dalasýslu. F. 19./10. 1835 d. 17./5. 1922.“ Aftan á titilsíðunni er skrifað, að því er virðist með sömu hendi: „Eigandi bókarinnar Árni Ketilbjarnar, Stykkishólmi.“ Fyrir neðan þetta er prentað bókamerki með nafni Árna Ketilbjarnar og kjörorðunum „Deo juvante“.
Á fremra spjaldi, neðst, er skrifað: „Gjöf til Kristínar Kötlu Árnadóttir / á þrítugs afmæli hennar 22 feb. '79.“ Efst, með annarri hendi er skrifað, mögulega af barni: „Gjöf til Elenu Kris[t]ínu“ og dagsetningin „20.11.2013“, með enn annarri hendi.
Á lausu blaði sem fylgdi handritinu stendur: „Til Ellu minnar / frá mömmu / Ella á að fá bókina / Kristín Katla Árnadóttir.“
Innbundið.
Handritið er illa farið, laust í bandi.
Keypt 26. júní 2014. Seljandi handritsins var Elena Kristín Pétursdóttir en Magnús var langalangafi hennar.
Nöfn í handriti: Elena Kristín Pétursdóttir, Kristín Katla Árnadóttir og Árni Ketilbjarnarson.
Sett á safnmark í janúar 2015.
Gert við kjöl og fremstu blöð 2015.