„Andvökur“
„Þess einmana vakandi byltist í beði …“
19 erindi. Fyrirsögnin tvírituð í handriti.
„Gremst mér, eg græt, Gróu missirinn forna …“
5 erindi. Ort um dóttur (Gróu).
„Söknuður sár, svíður nú hjarta mínu …“
4 erindi, 4. erindi tvískipt og hlutarnir númeraðir 1 og 2. Ort um dóttur (Gróu).
„Ort af sáluga Jóni Jóhannessyni á Beinakeldu“
„Hvað er yndi um heims byggðir …“
Kvæðið skiptist í hlutana „Spursmál“ og „Andsvar“, samtals 5 erindi.
„Loka heilræði“
„Hlýð þú minn sonur! á heilnæm ráð og gá …“
19 erindi.
„Stríðs saungur“
„Sortanun birta bregður frí …“
6 erindi. Í handriti stendur birtu fyrir birta.
„Kvæði ort við heimkomu Herra Gríms amtmanns“
„Áður á öld, órir þrátt saman drukku …“
5 erindi.
„Engillinn“
„Eg hef í raunir ratað …“
8 erindi.
Pappír.
Einn dálkur.
Leturflötur er 160-167 mm x 105 mm.
Línufjöldi 22-26.
Óþekktur skrifari.
Óinnbundið hefti.
Á blaði 8v eru nöfnin Guðrún Benediktsdóttir og (Skúli?) Einarsson.
Oddný Ingvarsdóttir fékk handritið frá föðurbróður sínum, Gunnari Ingvarssyni í Laugardalshólum í Laugardal (d. 1934), en kona hans var Steinvör Eggertsdóttir frá Stóru-Ásgeirsá í Víðidal, dóttir Eggerts Jónssonar á Kleifum, og frá henni er handritið komið.