Inn á milli kvæðanna eru rímur. Framan við er ítarlegt registur.
Pappír.
Handrit þetta hefur eigandinn nefnt Vijums-Bók af því að upprunalega segir hann það komið úr eigu Brynjólfs Evertssonar Viums.
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 2. bindi, bls. 416.
Guðrún Laufey Guðmundsdóttir frumskráði, 22. júlí 2020.