Pappír.
Eldri blaðtalning, blaðsíður taldar 1- 229 (129), 3 síðustu blaðsíðurnar ranglega merktar 127, 128 og 129 í stað 227, 228 og 229. Auk þess kemur blaðsíða 106 á eftir blaðsíðu 103 og vantar því blaðsíður 104 og 105 , þ.e. bl. 53 er merkt 103 á recto-hlið og 106 á verso-hlið. Blöð hvers efnisþáttar hafa verið merkt 1, 2, 3 . . .
Handritið er laust í bandi og saumi. Á blöðum var gömul vond viðgerð sem hefur nú í ágúst 2010 verið losuð upp og endurgerð. Mörg blöð lítillega sködduð en viðgerð.
Efnisyfirlit á fremri saurblöðum 2v-5v með hendi Páls Pálssonar stúdents.
Handritið er í tveimur hlutum, eitt blað 365 x 123 mm er í sér umbúðum.
Innskotsblað með hendi Páls Pálssonar stúdents milli blaðs 18v og 19r, leiðrétting eða viðbót við textann á bl. 19r - 22v.
Með liggur eitt blaðSálmur um enduruppreisn Magisters Björns Þorleifssonar superintendents á Hólum á Hólaprentverki, ortur af Magnúsi Illugasyni presti á Húsavík, prentaður á Hólum 1703, hér í uppskrift Jóns Borgfirðings Jónssonar
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 2. bindi, bls. 46-47.
Sjöfn Kristjánsdóttir frumskráði 5. ágúst 2010 Guðrún Laufey Guðmundsdóttir bætti við skráninguna 25. mars 2020.Athugað fyrir myndatöku 3. ágúst 2010: Viðgert í ágúst.
Myndað í ágúst 2010.
Myndað fyrir handritavef í ágúst 2010.