Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

Lbs 4940 4to

Fornmannasögur Norðurlanda ; Ísland, 1898

Titilsíða

Fornmannasögur Norðurlanda þrettánda bindi. Skrifaðar eftir gömlum bókum annó MDCCCXCVIII ( 1r )

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (2r-4v)
Formáli
Efnisorð
2 (5r-24v)
Knúts saga Steinssonar heimska
Titill í handriti

Sagan af Knúti Steinssyni heimska

Upphaf

I. kap. Það er upphaf þessarar sögu að í Norðlandi sem einn partur af Svíaríki, bjó forðum bóndi einn ríkur og mikilhæfur…

Niðurlag

… þó að afkomenda hans sé eigi getið í þessari sögu, né annarra barna Knúts konungs. Lýkur hér með sögunni af Knúti hiunm heimska.

3 (25r-44v)
Sigurðar saga turnara
Titill í handriti

Sagan af Sigurði turnara

Upphaf

I. kap. Svo byrjar upphaflega þessa sögu, að fyrir Frakklandi hefir konungur ráðið sá er Vilhjálmur hét …

Niðurlag

… varð Sigurður síðan einvalds konungur á Grikklandi og Frakklandi, og unntust þau drottning hans vel. Lúkum vér svo sögunni af Sigurði turnara.

Efnisorð
4 (45r-137v)
Hinriks saga góðgjarna og Valentínus sonar hans
Titill í handriti

Sagan af Hinriki góðgjarna og Valentínus syni hans

Upphaf

I. kap. Jarl er nefndur Kragi, sonur Gríms hins rauða …

Niðurlag

… er eigi getið um gifting hans né bróður hans í Garðaríki og getur þess í öðrum sögum. Lýkur svo sögunni af Hinrik konungi góðgjarna og Valentínus syni hans.

5 (138r-200v)
Samsons saga fagra
Titill í handriti

Sagan af Samson fagra

Upphaf

I. kap. Þar hefjum vér frásögu þessa af einum mikilsháttar konungi, hvers nafn gekk á öllum tungum fyrir norðan fjall …

Niðurlag

… og sendi hana Artus konungi; þar af rís Skikkjusaga. Lýkur við þetta sögu Samsonar fagra.

Efnisorð
6 (201r-231v)
Partalópa saga
Titill í handriti

Sagan af Partalopa og Marmoríu

Upphaf

I. kap. Svo er sagt að fyrir Miklagarði réði keisari sá er Saragus hét …

Niðurlag

… þau áttu þann son er Hlöðver hét, hann tók ríki eftir föður sinn og varð mikill höfðingi sem forfeður hans, en ekki er hér um hann meir ritað, og er hans getið í öðrum frásögum. Lýkur með þessu efni sögunni af Partalopa og Marmaríu.

Efnisorð
7 (232r-303v)
Hrólfs saga Gautrekssonar
Titill í handriti

Sagan af Hrólfi konungi Gautrekssyni

Upphaf

I. kap. Þar hefjum vér þessa sögu er Gautrekur konungur son Gauta konungs, réð fyrir Gautlandi …

Niðurlag

… Svo segja fróðir menn, að mörg sé þau hreystiverk Hólfs konungs er eigi sé rituð í þessari sögu, kemur það mest þar til, að menn hafa þar eigi sannar frásagnir af, því að þessi saga kemur lítt við aðrar sögur, því að þessa sögu segja eigi allir eins, þá kemur það fram að það þykist annar heyra, er annar heyrir ekki í frásögum. Lúkum vér hér sögu Hrólfs konungs Gautrekssonar.

8 (304r-342v)
Marons saga sterka
Titill í handriti

Sagan af Maroni sterka

Upphaf

I. kap. Andronikus er maður nefndur, hann var bóndi einn, og bjó nærri þeim fjöllum í Vallandi er Odundíafjöll eru kölluð …

Niðurlag

… Það er margra sögn að Maron konungur hafi verið ein hin mesta hetja, og allra þeirra manna sterkastur er sögur frá segja, og endar þannig sagan af Maroni konungi sterka.

9 (343r-376v)
Rígabels saga konungs og Alkanus
Titill í handriti

Sagan af Rigabal og Alkanus fóstbræðrum

Upphaf

I. kap. Fyrir Armeníu réði sá konungur er Íberus hét …

Niðurlag

… Rigabal konungur varð gamall maður, en eftir afgang hans varð Klarus konungur í Armeníu, og endar svo sagan af Rigabal konungi og Alkanus fóstbróður hans.

10 (377r-400v)
Sörla saga sterka
Titill í handriti

Sagan af Sörla sterka

Upphaf

I. kap. Í þann tíma sem Hálfdán konungur Brönufóstri stýrði Svíþjóð hinni köldu …

Niðurlag

… Þeir Högni og Sörli slitu aldrei sína vináttu meðan þeir lifðu báðir, og er eigi getið þar um, hvort þeim hafi barna auðið orðið eður eigi eftir sig. Lýkur hér nú sögunni af Sörla hinum sterka og hans miklu afreksverkum, með svo sögðu niðurlagi og endalykt.

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír.

Blaðfjöldi
ii + 400 + ii blöð (206 mm x 166 mm).
Skrifarar og skrift
Ein hönd ; Skrifari:

Magnús Jónsson

Band

Innbundið.

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland, 1898.
Aðföng
Keypt 26. apríl 1983 af sonardóttur ritara, Ólöfu Ketilbjarnar í Reykjavík. Sbr. Lbs 4397-4398 8vo.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Skráning Gríms M. Helgasonar og Ögmundar Helgasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 4. aukabindi, bls. 176.

Halldóra Kristinsdóttir frumskráði 30. apríl 2018.

Notaskrá

Titill: Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins
Ritstjóri / Útgefandi: Páll Eggert Ólason
Umfang: I-III
Lýsigögn
×

Lýsigögn