Pappír.
Á fremra skjólblaði er ritað: „Sigurður Bárðarson á þessa bók með réttu dag 11. júlí 1886 á ferð til Ameríku um borð í Camóens.“
Lbs 3623-3630 4to, gjöf til Íslands frá Sigurði Bárðarsyni smið, er bjó um skeið á Jörfa, en fluttist til Vesturheims sumarið 1886. Sonur Sigurðar, Leo Breiðfjörð , sendi Háskóla Íslands handritin 1952 , en síðan voru þau afhent Landsbókasafni til eignar.
Til Þjóðminjasafns runnu úr þessari sömu gjöf Syrpa séra Helga Sigurðssonar á Melum (nr. 15175) og ljóðakver með hendi séra Helga og Helga sonar hans 1867-1868 (nr. 15174).
Skráning Gríms M. Helgasonar og Lárusar H. Blöndal á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins , 3. aukabindi, bls. 113.
Halldóra Kristinsdóttir frumskráði 26. júní 2019 ; úr óprentaðri handritaskrá.