Fróðlig sagnabók innihaldandi eftirtektaverðar historiur nokkra nafnfrægra íslenskra manna, hvörjar forðum tíð þessa lands innbyggjarar hafa uppteiknað og eftir sig látið. Nú að nýju uppskrifaðar anno 1698 eftir þeim orðréttustu gömlu bókum er menn meina fyllstar og sannferðugastar vera. Fróðleiksgjörnum lesara til iðkunar og íhugunar en þeim til lærdóms og lystisemi sem þesskonar skemmtun hlýða nenna. (1r)
„Hér byrjar Njáls sögu“
„Mörður hét maður er kallaður var gígja …“
„… son Brennu-Flosa hét Kolbeinn, er ágætastur hefur verið einhvör í þeirri ætt.“
Og ljúkum vér þar Njáls sögu.
„Hér byrjast Hungurvaka“
„Bækling þennan kalla ég hungurvöku …“
„… bæði við óhlýðna menn og rangláta.“
„Hér byrjar dateruð nöfn þeirra kónga sem ríkt hafa yfir Noreg, Danmörk, Englandi og Skotlandi, eftir sem af krónikum bevísast kann og gömlum annálum“
„Anno Christi 846 fæddur Haraldur hárfagri …“
„… gjörðist Englands kóngur næst eftir mág sinn.“
„Registur biskupanna sem á Íslandi verið hafa“
„Ísleifur Gissursson (son Gissurar hvíta) var hinn fyrsti biskup í Skálholti …“
„… kom að utan og settist á stólinn. Deyði 17.“
„Registur lénshöfðingjanna sem yfir Íslandi stjórnað hafa síðan það kom fyrst undir Norvegskrónu“
„Gissur Þorvaldsson var gjörður að jarli af kóng Hákoni Hákonarsyni …“
„… Christian Müller amtsmann.“
„Registur þeirra lögmanna sem á Íslandi verið hafa síðan það fyrst byggðist og lögmenn fyrst gjörðust með sérhvörs árs dato eftir því sem í annálunum fundist hefur“
„Hrafn Hængsson var fyrstur lögmaður á Íslandi …“
Á blaði 386 hefur önnur hönd bætt við upplýsingum um lögmenn seint á 17. öld og til 1800.
Pappír.
Vatnsmerki.
Eindálka.
Leturflötur er 165 mm x 125 mm.
Línufjöldi er 29-33.
Griporð.
Óþekktur skrifari en hönd hans er að finna á handritinu Add. 4865 sem varðveitt er í British Museum, blöð 289r-338v.
Litskreytt titilsíða, litir rauður, blár og gulur.
Stafir og titlar víða skreyttir.
Bókahnútur: 373v.
Samsvarandi myndir af Agli Skallagrímssyni, Gretti Ásmundarsyni og Guðmundi ríka Eyjólfssyni er að finna í AM 426 fol. , með myndatexta skrifuðum af Magnúsi Ketilssyni. Höfundur allra fjögurra myndanna er að öllum líkindum Hjalti Þorsteinsson í Vatnsfirði (sbr. Agnete Loth, Opuscula III , bls. 94-95).
Á fremra saurblaði 3r: „Þessi bók er af sögusafni Boga Benediktssonar 1815 og af manuscriptio, in catalogo merkt undir númer 5 sub littera A.“ (efst) „Dono dignissimi domini Skulonis Magni Dalensium toparchæ, librum nactus sum B[ogi] Benedicti“ (neðst).
Samtímaband (210 mm x 165 mm x 72 mm).
Brúnt skinnband á tréspjöldum með látunsspennum.
Límmiði á fremra spjaldi.
Þessu handriti fylgir lituð mynd af Njáli sem geymd er í sérstakri möppu.
Jón úr Vör keypti handritið af Sigríði Einarsdóttur ekkju Jóns Sigurðssonar
Úr safni Boga Benediktssonar (fremra saurblað 3r).
Bogi fékk handritið að gjöf frá Skúla Magnússyni samanber latínutextann á saurblaði 3r.
Sbr. Lbs 633 fol.
Jón úr Vör seldi, ágúst 1956.
Athugað 2000.
Myndað fyrir handritavef í ágúst 2010.