Ein ágæt sögu- og rímnabók. Samansöfnuð af Bergþóri Þorvarðssyni og að hans forlagi innbundin í eitt árið 1814 af Ólafi Sigurðssyni. (1r)
„Hér hefur sögu af Birni Hítdælakappa“
„Hér byrjast fyrst að segja af forfeðrum Grettirs Ásmundarsonar“
„Hér byrjar sögu af Víglundi“
„Ný umferð til skoðunar þeirrar fornu Grænlandsbyggðar eður stutt frásögn um upphaf og eyðilegging þeirrar gömlu norsku byggingar í Grænlandi … og þess núverandi innbyggjara, klæðnað, búskaparlag, fæðu, tungumál, hjónaband og aðra þeirra siðu. … Samantekin af hr. Hans Egede … og nú anno 1729 yfir skoðuð og eftir kunnigleik nokkuð umbreytt af einum sem um nokkurn tíma verið hefur í Grænlandi“
„Þetta framanskrifað íslenskað af prófastinum sr. Snorra Jónssyni að Helgafelli anno 1732 (211v)“
Pappír.
Vatnsmerki.
[síra Ólafur Sigurðsson Sívertsen í Flatey] titilsíða.
Saurblöð eru úr ýmsum áttum meðal annars er uppskrift á dánarbúi Bjarni Bjarnason á Ytri-Þorsteinsstöðum, dags 3. júní 1837.
Skinnband með tréspjöldum, þrykkt
Stafirnir B.Þ. og S.A. eru þrykktir framan á kápu, að aftan er þrykkt ártalið 184[…].
Fremra spjaldblað er úr prentaðri Egils sögu.
Aftari spjaldblöð eru tvö, laus frá spjaldi, úr prentuðum ritum á dönsku og latínu.
Aftast í handriti liggur seðill (176 x 90 mm) úr bandi sem geymir brot úr kveðskap.
Eigendur handrits: P[áll] Hjaltalín faktor (1r), Jón Ólafsson Þórbergsstöðum (aftara saurblað 1v), Magnús Einarsson, Jörfa 27/9 1735 (211v), Bergþór Þorvarðsson Leikskálum (lánar Jóhannesi Jónssyni, Stóra-Vatnshorni rímur af Illuga Talgdarbana) (233v). Nafn í handriti Sigurður Jónsson (1v)
Þorleifur Jóhannesson í Stykkishólmi, seldi, 1932.
Athugað 2000.