Sjóðurinn. Samansafn af ýmsum fróðlegum og markverðum ritum, tilburðum og áríðandi vísindum Íslendinga, bæði vitranir, frásagnir, lög og réttarvenjur, auk margs annars. Samantínt eftir ýmsum gömlum skræðum á Höfða í Dýrafirði 1879-1887. Sighvatur Grímsson Borgfirðingur. (1r)
„Sagan af hinni heilögu Margréti mey og hennar píslum“
„Nokkur spakmæli heimspekinganna“
„Allt sem hér að framan er skrifað er tekið eftir gamalli skræðu 8 bl. br. (að fráteknum fyrsta draumnum) sem flest mun vera skrifað af Benidikt Gabríel Jónssyni á Auðkúlu í Arnarfirði. Á kverinu voru og kvæði og þulur með ýmsum höndum sem ég hef allt skrifað annarstaðar (35v)“
„Um Loth“
„Nokkuð um Bláland“
„Af borginni Babilon“
„Um Job“
„Um Alexandriam“
„Um Cesarea Philippi“
„Um Tíberías“
„Um Efesó“
„Um Kristi gröf“
„Um mann sem hvorki neytti matar né drykkjar“
„Um eina jómfrú sem fóstraðist á eitri“
„Um Tartaria“
„Um Hattó biskup“
„Tyrkjans stríðsboðan“
„Keisarans þess kristna mótsvar“
„Kópía af Tyrkjans aðmírálsbréfi“
„Um hvalakyn í Íslandshöfum“
Óheilt
„Brot úr gamalli íslenskri ritgjörð (… Gissur jall Þorvaldsson 1288. Item Magnús konungur hans son …)“
„Allt sem hér er skrifað frá 59 bls. er skrifað eftir bókarskræðu í 8to mjög fúinni með hendi Árna Böðvarssonar á Ökrum (55r)“
„Testamentum sérhvers patríarka þeirra tólf sona Jakobs hvörnin þeir fyrir sinn afgang kenndu sínum börnum guðsótta og minntu þau á guðlegt framferði. Snúið af dönsku á íslenskt móðurmál annó 1617 … Uppskrifað á Söndum við Dýrafjörð annó 1734 en endað í Hokinsdal annó 1741 /: eftir handriti síra Jóns Þórðarssonar á Söndum:/“
„Nú eftirfylgir historían af Assenath …“
„Hér skrifast annáll Péturs Einarssonar lögréttumanns á Ballará skrifaður hér eftir gömlu handriti Gunnlaugs Guðmundssonar. Þar vóru á þrennir rímnaflokkar eftir Guðmund Bergþórsson. Það er að sjá sem handritið sé upphaflega undan Jökli“
„Annál þenna hefi ég skrifað eftir gömlu handriti í 4to sem víða var orðið límt á. Endað 8. apríl sem var laugardagur fyrir páska 1882 á Höfða í Dýrafirði (129r)“
„Saga af krosstré Krists“
„Ein stutt útskrift um Pontio Pilato og um hérkomu, lifnað og endalykt svo og um Jesú Kristi saklausan dauða og pínu og himnaferð og margt meira sem þessi historía inniheldur. /:Eftir sama handriti og næsta saga á undan, sjá bls. 95:/“
„Þ. 28. apríl 1882 (143v)“
„Nöfn ræningjanna sem krossfestir vóru með Jesú“
„Með þessum orðum skal engillinn hafa styrkt vorn herra í grasgarðinum“
„Um nokkur grös“
„Um handarlínulistina eða lófalestur“
„Tungla primum“
„Lítið ágrip um nokkra gimsteina eftir 3. bók Alberti Magni“
„Um fugla“
„Um rúnanna uppruna og brúkun hafa skrifað. /: Eftir blaði úr bók í arkarbroti mjög rifnu með hönd Jóns Jakobssonarsýslumanns föður Jóns Espólíns :/“
„Peaberis tractatus de runica eða um rúnir og þeirra uppruna. /: Eftir mjög gömlum blöðum í 8to lítt læsilegum af fúa með fallegri fljótaskriftarhendi svipaðri Árna skálds Böðvarssonar :/“
Teiknuð innsigli á blöðum 196v-197r
„Saga um fáheyrða sjón. /: Eftir handriti Gísla Konráðssonar :/“
„Forntöluð réttmæli úr Norrænu. Eftir handriti Árna skálds Böðvarssonar í 8vo. Handritsins er áður getið að framan, bls. 95. Það var svo fúið að sumstaðar varð að sleppa og hefi ég víða orðið að lagfæra sumt. Handrit þetta er úr eigu Gísla Konráðssonar. Ég hef sett hér allt úr Íslendingasögum en það var á rugli“
Orðasafn
„Brot af útleggingu á Hallmundarkviðu. /: Eftir sama handriti og næst á undan en vantaði framan og aftan. Þetta vóru aðeins tvö blöð en svo fúin að ekki varð lesið ofan og neðan á blöðunum :/“
Hallmundarkviða úr Bergbúaþætti
„Tylftir sjávar kringum Ísland. /: Eftir sama handriti og næst á undan :/“
„Ýmislegt viðkomandi fornum lögum, verðlag, alþingisdómar, tíundargjörð og fleira. /: Eftir sömu bókarskræðu og næst á undan. Af því handritið var með öllu ólæsilegt af fúa, nálega hvert blað, þá eru eyður og allósamstætt en þó hef ég skeytt saman það er ég gat“
„Brot úr Skraparotspredikun. /:Ég hygg það sé úr Skraparotspredikun en óvíst. Eftir 4 blöðum í 8to mjög daufum. Aftan á þeim var skrifað: "Guðmundur Magnússon". Þau blöð eru sunnan úr Borgarfirði og munu vera úr eign Guðmundar sál. skálds Magnússonar í Stóru-Skógum sem dó 1860. Höndin á þeim er fljótaskrif[t]arkennd snarhönd með sortubleki nokkuð gömul:/“
„að Búðum 1888 (277r)“
„Nokkur ævintýri. /: Eftir kveri í 8to með hendi Hans Víums :/“
23 ævintýri
„Ræða yfir Reynistaðabræður flutt 11. nóvember 1846 á Reynistað af síra Halldóri Jónssyni í Glaumbæ, síðar prófasti á Hofi í Vopnafirði. Skrifuð hér eftir handriti Jóns Borgfirðings lögregluþjóns í Reykjavík er hann segist hafa ritað "eftir illu handriti 21. febrúar 1885"“
„Cyprianus innihaldandi hina fullkomnu og tilhlýðilegu drauma- og spádómsbók með tilsögn að spá í spil, í kaffi og eggjahvítu og þar með fá vissu um sín eigin og annarra forlög. Ásamt plánetubók …“
„Ágrip um ætt og ævi Jóns bónda Íslendings. Skrifuð hér eftir 2 handritum. Annað er afskrift Jóns Borgfirðings sem hann hefir ritað í Reykjavík og endað 5. október 1885. Hitt handritið á ég sjálfur. Það er úr eigu Gísla Konráðssonar og kallað hér B með ágætri smárri fljótaskrift … Handrit þetta eru 4 blöð í 4to skrifað út á randir og hefir víst ekki verið lengra. Handrit Jóns Borgfirðings er lagt til grundvallar enn mismunur handritanna er sýndur neðanmáls…“
„Höfða í Dýrafirði þ. 4 apríl 1886 … (320r)“
Á blöðum 318v-320r eru athugasemdir Sighvats Grímssonar við textann
„Saga af Sveini á Þröm og háttum hans skrásett af Benidikt Árnasyni bónda á Gautstöðum á Svalbarðströnd … Þessi saga er skrifuð hér eftir handriti doktor Finns Jónssonar sem hann hefir endað að skrifa 4. febrúar 1872 …“
„Enduð 10. ágúst 1886 (330v)“
„Frá Ívari Vestfirðing skrásett af Benidikt hreppstjóra Árnasyni. … þessi saga er hér skrifuð eftir frumriti höfundarins með eigin hendi í 8vo að því er Jón Borgfirðingur hefir ritað á handritið …“
„Enduð á höfuðdaginn 29. ágúst 1886 (354r)“
„Komædia samanskrifuð af Hrafna-Flóka í miðju ragnrökkri á degi einkis mánaðar. /:Skrifuð hér eftir kveri í 8vo úr safni Jóns Borgfirðingsmeð hönd dr. Finns sonar hans …:/“
„Skipaformáli /:Þennan skipaformála hefir Steingrímur Thorsteinsson skólakennari skrifað eftir AM 155 8to en eftir þeirri afskrift hefir Jón Borgfirðingur ritað í Reykjavík 17. desember 1872 …:/“
„Tábeitispredikun. /:… hún er skrifuð hér eftir handriti Jóns Borgfirðings sem hann hefir ritað á Oddstöðum í Lundareykjadal 5. apríl 1848 …:/“
„Gellirspredikun. /:… Fyrsta ritsmíði Jóns Borgfirðings, mig minnir (segir höfundurinn), 1845 eða 46. Skrifað hér eftir eiginhandriti höfundarins sjálfs í 4to á 16. bls.:/“
„Skraparotspredikun. /:Skrifuð hér eftir Yrpu, handrit í 4to úr safni Jóns Borgfirðings. Sú bók er skrifuð af Geir Vigfússyni á Akureyri 1865-1866 …:/“
„Messulæti á Leirgerðarmessu … /: Skrifað hér eftir Yrpu blaðsíðu 12-25 :/“
„Pater Wolle Pæirrens merkilega munkaprédikun um hirðirinn, sauðina og reikningskapinn“
„Endað á Höfða í Dýrafirði 24. september 1886 (403r)“
„Ein ræða eður predikun. Skrifuð hér eftir lausum blöðum úr safni Jóns Borgfirðings með gömlu settletri …“
Pappír
Gömul blaðsíðumerking iii-xiii (2r-7r), 1-804 (8r-409v)
Sighvatur Grímsson Borgfirðingur
Lbs 2265-2387 4to, eru meðal handrita þeirra, er safnið keypti af Sighvati Grímssyni Borgfirðingi með samningi 20. júní 1906, og afhent voru að fullu eftir andlát hans, 1930.
Athugað 2001