Fornmannasögur Norðurlanda seytjánda bindi. Skrifaðar eftir bókum og handritum MDCCCXCIV-V (1r)
„Sagan af Geirmundi karlssyni og Geirald konungssyni“
„1. kap. Kvaðgeir hinn ríki réði Serklandi forðum daga, hann tók konungstign og ríki eftir forfeður sína …“
„… hann fékk Sólborgar Geiraldsdóttur, og varð síðan konung á Serklandi. Og við þetta lýkur sögu Geirmundar karlssonar og Geiralds.“
„Sagan af Hjálmari hugumstóra“
„1. kap. Það er upphaf þessarar sögu að fyrir Garðaríki réði konungur ágætur er Týrus hefur nefndur verið …“
„… Oddur unir ekki í Svíþjóð eftir dauða Hjálmars og leggst hann í hernað og siglir víða um lönd, og segir eigi meir af honum í þessarri sögu. Lýkur hér sögu Hjálmars hugumstóra.“
„Blómsturvalla saga“
„Á ofanverðum dögum Hákonar konungs er kallaður var hinn gamli, og þá er hann hafði ráðið fyrir Noregi tuttugu vetur, þá komu sendimenn Friðreks keisara …“
„… hvort því hefir valdið meir elli eða tak það hið mikla, er hann tók á Blómsturvelli, vitum vér ekki. Fór þá hver til sinna heimkynna og fórsturlands. Og endum vér hér sögu þeirra Ákasona.“
„Sagan af Kára Kárasyni“
„1. kap. Sá konungur réði fyrir Fenidía er Reginbald hét …“
„… Ekki getur um börn þessara konunga; stjórnaði Hinrik ríki sínu í góðum friði og varð ellidauður. Og endar hér svo sagan af Kára Kárasyni.“
„Sagan af Héðnn og Hlöðver“
„1. kap. Hér byrjum vér frásögu vora á einum voldugum konungi og miklum höfðingja …“
„… urðu þeir allir ágætir menn, verði eigi meira frá þeim greint í þessari sögu. Og með þessu efni sem nú hefir verið frá sagt endar sagan af Héðinn konungi og Hlöðver syni hans.“
„Hér skrifast ævintýrið Jóhönnuraunir“
„1. kap. Eftir það er Serkir unnu Spán og tóku þar bólfestu, skiptist landið í mörg smáríki …“
„… en sagt er að þeirra niðjar hafi síðan ráðið landi í Portúgal. Og lýkur hér með frásögninni af Jóhönnu Vilhjálmsdóttur og Jóhannesi syni hennar.“
„Sagan af Haraldi konungi hilditönn“
„1. kap. Hrólfur konungur Helgason er kallaður var hraki, réði Reiðgotalandi, Sælandi og eyjum þeim er þar til liggja, er nú á dögum hefir Danmörk verið kölluð …“
„… Haraldur konungur varð kynsæll maður. Lýkur þar með sögu Haralds konungs hilditannar.“
„Sagan af Sigurði fót og Ásmundi Húnakonungi“
„1. kap. Það er upphaf þessarar sögu að Knútur er konungur nefndur. jamm réði fyrir Sjálandi …“
„… Eigi þykjast menn vita aðra menn en þá Sigurð og Ásmund konunga er betur hefir farist hverjum við annan, og drengilegri vináttu sýnt, svo illa sem áhorfðist þeirra í milli. Og lúkum vér sögunni af Sigurði fót og Ásmundi Húnakonungi.“
Blaðsíðumerking með hendi skrifara: 4-800 (4v-402v).
Blaðmerkt fyrir myndatöku.
Innbundið.
Magnús Jónsson í Tjaldanesi, seldi, 1909.
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins , 1. bindi, bls. 536-538 .
Halldóra Kristinsdóttir frumskráði 4. apríl 2017.