Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

Lbs 1500 4to

Fornmannasögur ; Ísland, 1880

Titilsíða

Fornmannasögur Norðurlanda tíunda bindi. Skrifaðar eftir gömlum bókum árið MDCCCLXXX (1r)

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (2r)
Efnisyfirlit
2 (3r-35v)
Helenu saga
Titill í handriti

Sagan af Elínu drottningu einhentu

Upphaf

Á ofanverðri elleftu öld eftir Kristsburð, sat Klemens páfi á Pétursstóli í Róm …

Niðurlag

… Þá var Klemens páfi andaður fyrir nokkrum árum. Og lýkur með þessu efni sögunni af Elínu drottningu einhentu.

Efnisorð
3 (36r-60v)
Natons saga persiska
Titill í handriti

Sagan af Natoni persiska og Flórida drottningu

Upphaf

1. kap. Fyrir Persalandi réði konungur sá er Sáar hét, hann var ungur að aldri og hafði nýfengið þá drottningu er Elín hét …

Niðurlag

… andaðist hann í hárri elli, en synir hans tóku ríkið eftir hann. Lýkur svo sögunni af Natoni persiska og Flórida drottningu.

Efnisorð
4 (61r-91v)
Sigurgarðs saga frækna
Titill í handriti

Sagan af Sigurgarði frækna og fóstbræðrum hans

Upphaf

1. kap. Ríkarður er konungur nefndur, hann réði fyrir austur í Görðum …

Niðurlag

… Ríkarður konungur sigldi heim í Garðaríki og settist um kyrrt; en Sigurgarður tók konungsnafn í Tartaría, varð hann ágætur.

Efnisorð
5 (92r-151v)
Böðvars þáttur bjarka
Titill í handriti

Sagan af Böðvari bjarka

Upphaf

1. kap. Á þeim tíma er Hrólfur konungur Halegason og hans forfeður réðu Danmörk, höfðu þeir aðsetur í Hleiðargarði og efldu þann bústað mikið …

Niðurlag

… átti þá Böðvar að taka ríkisstjórn, en hann andaðist litlu síðar, voru haugar miklir gerfir að þeim Hrólfi konungi og Böðvari og stóðu báðir saman. Lýkur þar með sögunni af Böðvari bjarka.

6 (152r-206v)
Sagan af Flórentínu fögru
Titill í handriti

Sagan af Flórentínu fögru

Upphaf

1. kap. Hernit er konungur nefndur er réði fyrir landshluta þeim er forðum daga var af Rómverjum kallaður Elismindi …

Niðurlag

… Þau Álfgeir konungur og drottning áttu fimmtán börn er úr æsku komust, en eigi verður þeirra að neinu getið í þessari sögu. Lýkur þar með sögunni af Flórentínu drottningu hinni fögru.

Efnisorð
7 (207r-240v)
Hervarar saga og Heiðreks
Titill í handriti

Sagan af Heiðreki konungi vitra

Upphaf

1. kap. Svo er sagt að í fyrndinni var kallað Jötunheimar norður í Finnmörk …

Niðurlag

… Synir Hallsteins voru þeir Filippus og Ingi er konungdóm tók í Svíþjóð eftir Inga konung gamla. Filippus átti Ingigerði dóttur Haralds konungs Sigurðarsonar, var hann skamma stund konungur.

8 (241r-342v)
Amúratis saga
Titill í handriti

Sagan af Amúratis konungi í Frygía

Upphaf

1. kap. Á þeim tíma er Urbanus-Hannæus páfi sat á Pétursstóli í Rómaborg og stýrði guðs kristni …

Niðurlag

… síðast settist hann að á Bretlandi og varð þar konungur yfir miklum hluta landsins, og jók þar kyn sitt. Og með þessu efni sem nú hefur verið frá sagt, lýkur sögu Amúratis konungs og Moniku drottningar.

9 (343r-370v)
Nikulás saga leikara
Titill í handriti

Sagan af Nikulási leikara

Upphaf

1. kap. Svo segja fróðir menn og meistarar að sá konungur hafi ráðið fyrir Ungaría er Fastínust hét …

Niðurlag

… Þau Nikulás konungur og Darma drottning entu líf sitt í góðri elli, og voru mjög harmdauði, og þótti eigi ágætari konungur verið hafa en Nikulás á hans dögum, og lúkum vér hér sögunni af Nikulási konungi leikara.

Efnisorð
10 (371r-399v)
Bærings saga
Titill í handriti

Sagan af Bæring fagra riddara

Upphaf

1. kap. Á dögum Alexanders páfa réð fyrir (Miklagarð), Saxlandi Bæring hertogi …

Niðurlag

… Nú er kominn á sögu þessa endir, er vér séum allir til Krists sendir, þessa heims til giftu og gæfu, en síðar meir í fögnuð og sælu, þar sem guð hefir búið sínum vinnu á efstu tíð heimsins utan enda.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðfjöldi
ii + 400 + ii blöð (198 mm x 158 mm).
Tölusetning blaða

Blaðsíðumerking með hendi skrifara: 5-800 (3r-400v).

Blaðmerkt fyrir myndatöku.

Skrifarar og skrift
Ein hönd ; Skrifari:

Magnús Jónsson í Tjaldanesi.

Band

Innbundið.

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland, 1880.
Aðföng

Magnús Jónsson í Tjaldanesi, seldi, 1909.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins , 1. bindi, bls. 536-538 .

Halldóra Kristinsdóttir frumskráði 28. mars 2017.

Viðgerðarsaga

Notaskrá

Titill: Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins
Ritstjóri / Útgefandi: Páll Eggert Ólason
Umfang: I-III
Lýsigögn
×

Lýsigögn