Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

Lbs 1332 4to

Sögu- og kvæðabók ; Ísland, 1767

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-141v)
Laxdæla saga
Titill í handriti

Hér hefur upp Lax-dælu

Skrifaraklausa

Endað 15. októbris anno 1767 uppskrifað eftir því exemplari sem ég hafði uppskrifað á Hvanneyri í Siglufirði anno 172: d. Til merkis nafn. Að Bjarnarstaðagerði anno 1767 d. 15. októbris. Jón Helgason (141v)

1.1 (131r-141v)
Bolla þáttur
Athugasemd

Án titils

2 (142r-143r)
Kvæði
Titill í handriti

Er Laxdæla Oddnýjar

Upphaf

Er Laxdæla Oddnýjar …

Athugasemd

Án titils

Vera kann að hér sé eitt samhangandi kvæði um Oddnýju og Laxdælu hennar, en hugsanlega eru hér þrjú kvæði: 1) Er Laxdæla Oddnýjar, 2) Laxdælu vex vel, 3) Oddný friðar glödd sé gæðum. - Aftan við, á bl. 142v, er skýring á jurtaheiti í lokaerindinu. Á blaði 143r er fyrsta erindið skrifað aftur: Er Laxdæla Oddnýjar

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír

Blaðfjöldi
ii + 143 + i blöð (186 mm x 155 mm) Autt blað: 143v
Skrifarar og skrift
Ein hönd ; Skrifari:

síra Jón Helgason

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Handritið er tvídálka

Fremra spjaldblað er bréf frá séra Jóni Magnússyni, prófasti í Hegranesþingi, dagsett 29. júlí 1747 ;

Fremra saurblað 1: Bréf á dönsku til Kristjáns 6., dagsett 3. júní 1746, frá Christian R.

Fremra saurblað 2r: Bréf frá séra Jóni Magnússyni, prófasti í Hegranesþingi, skrifað að Hólum d. 25. apríl 1748. Á sama blaði eru nöfn presta sem hugsanlega eru viðtakendur bréfsins ;

Fremra saurblað 2v: Eyðublað fyrir kirkjusókn og lestrarkunnáttu

Aftara saurblað og aftara spjaldblað er bréf skrifað að Hólum 31. mars 1763 frá Gísla Magnússyni biskupi

Band

Skinnband með tréspjöldum og spennum

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland 1767
Ferill

Eigandi handrits: Oddný Helgadóttir 16. september 1772 (fremra spjaldblað).

Aðföng

Safn Jóns Þorkelssonar þjóðskjalavarðar, seldi, 1904

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Sigrún Guðjónsdóttir lagaði skráningu, 10. ágúst 2009 ; Handritaskrá, 1. b. ; Sagnanet 1. desember 1998
Viðgerðarsaga

Athugað 1998

Lýsigögn
×

Lýsigögn