„Ódysseifs kviða í tuttugu og fjórum þáttum“
Þýðandi : Sveinbjörn Egilsson
Nær aftur í 14. bók. Þýðing í óbundinni ræðu.
Pappír.
Lbs 415-462 4to. Í Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins er ekki skráður ferill þessara handrita sem öll tengjast Sveinbirni Egilssyni. Jón Jacobson segir frá því í bók sinni, Landsbókasafn Íslands 1818-1819 - Minningarrit, að árið 1888 hafi tilboð borist safninu frá þeim Halldóri Daníelssyni og Þórhalli Bjarnarsyni um kaup á handritum Sveinbjarnar, en þeir „höfðu umboð eigendanna“, eins og Jón orðar það (bls. 153). Safnið keypti handritin fyrir 150 krónur, og má ætla að þessi handrit hafi verið meðal þeirra.