Ættartölur frá síra Þorleifi Eiríkssyni á Breiðabólstað, Þorsteini Torfasyni í Hjörsey og Sigvalda langalíf.
Pappír.
Lbs 167-176 4to, úr safni Hannesar Finnssonar biskups.
Handritasafn Hannesar Finnssonar og Steingríms Jónssonar voru keypt af Valgerði Jónsdóttur 5. júní 1846 og marka kaupin stofnun handritasafns.
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins , 1. bindi, bls. 168-169 .
Halldóra Kristinsdóttir frumskráði 31. október 2017.
Viðgert og bundið af Páli Pálssyni.