Nokkur tildrög um Dýraríki Íslands teiknað af Benedikt Gröndal. (2r)
„Kvæði. Til mín.“
„Hann lét mig setjast við laglegt borð ...“
„... það besta, sem lífið hefur.“
„Október 1898.“
11 erindi
Pappír.
Gömul blaðsíðumerking 1-101 (1r-107v).
Blaðtala 101 dauf eða máð.
Blað 31 mjórra en önnur blöð handritsins eða 315 mm.
Myndir á hverri síðu. Á 101r er ekki lokið við teikningar og á 102r er aðeins nafn þess sem teikna skal. Á hinni ljósprentuðu útgáfu þessa handrits frá 1975 er efnisröð lítillega raskað, auk þess sem þar er prentað á v-síður, án þess að getið sé að svo er ekki í handriti, þ.e. kvæði Jóhanns Sigurjónssonar er sett v-megin á titilblað o.s.frv. og einnig er sleppt að mynda 102r.
Í örkum og fáeinum lausum blöðum. Handritið er í öskju.
Um Dýraríki Íslands segir Jón Jakobsson í Minningarriti Landsbókasafns 1818-1918, bls. 244: „Árið 1914 barst safninu frá stjórnarráðinu myndasafn Benedikts skálds Sveinbjarnarsonar Gröndals af íslenzkum dýrum , en hann hafði á efri árum sínum notið árlegs 600 kr. styrks úr landsjóði um allmörg ár til að búa til myndasafn af íslenzkum dýrum og til að semja Þjóðmenningarsögu Íslands, og haldið þeim styrk til dánardægurs (2. ágústd. 1907) með því skilyrði, að verkið yrði eign landsjóðs eftir hans dag.“
Athugað fyrir myndatöku 26. október 2010.
Myndað í október 2010.
Myndað fyrir handritavef í október 2010.