Eiginhandarrit. Á innfestum eyðublöðum og um handritið sjálft eru íaukar með hendi Boga Benediktssonar á Staðarfelli nokkurir, en mest með hendi Jóns dómsstjóra Péturssonar og dr. Hannesar Þorsteinssonar, en talsvert einnig með hendi Jósafats Jónassonar (Steins Dofra), Jóhanns ættfræðings Kristjánssonar og jafnvel fleiri. Framan við hvert bindi er titilblað og efnisinntak með hendi Páls Pálssonar stúdents. Aftan við 3. bindi er: 1) Skrá um júbílkennara í Hólabiskupsdæmi. 2) Hirðstjórar. 3) Prestatal í Hólabiskupsdæmi, stutt við skrá Hallgríms Jónssonar djákna. 4) Prófastaröð í Hólabiskupsdæmi frá siðskiptum. 5) Skrá prestakalla í Hólabiskupsdæmi með tekjum þeirra. 6) Biskupar um land allt. 7) Lögmannatal á Íslandi. Og allt er þetta með hendi Ólafs Snóksdalíns sjálfs. Aftast er með hendi Jóns Péturssonar: 1) Uppskrift ættartalna í Dals- og Hólssóknum undir Eyjafjöllum (eftir síra Jón Jónsson i Holti, gerðra 1808). 2) Ætt Jóhannesar Zoëga. 3) Framan við er skotið inn bréfi frá Indriða Þorkelssyni að Fjalli 1929, með ættarathugunum. Ættartölur úr Mývatnssveit og Ljósavatnshreppi (eftir Ásmund Gíslason að Þverá). 4) Ættir undir Eyjafjöllum. 5) Uppskrift dr. H. Þ. á Stóruvallaætt í Bárðadal (eftir Kristján verslunarmann Jónasarson) og brot úr ættum nokkurra Mývetninga eftir Jóhann Kristjánsson.
Óinnbundið.
Ísland, um 1834-1837.
Handritið er að erfðum komið frá Boga Benediktssyni að Staðarfelli.
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins , 1. aukabindi, bls. 2.
Sigríður H. Jörundsdóttir bætti við skráningu 2. ágúst 2016 ; Halldóra Kristinsdóttir frumskráði 29. júní 2015.