Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

JS 405 8vo

Sagnabók ; Ísland, 1780-1791

Titilsíða

Einn lítill sagnapési og byrjar á niðurstigningu drottins vors Jesú Kristí til helvítis og um nafnið Jesú. Samanskrifaður af gömlum og fúnum sagnablöðum eftir því sem réttast hefur orðið af Ólafi Jónssyni á Arney árið 1780

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (fremra saurblað 2 versó)
Efnisyfirlit
Titill í handriti

Innihald

Athugasemd

Með hendi Páls Pálssonar

2 (2r-10v)
Nokkur stórmerki píningar lausnarans
Upphaf

Vér viljum á vísa góðir bræður fyrir yður um nokkur stórmerki vors ens ljúfa lausnara píningar …

Athugasemd

Án titils í handriti

Efnisorð
3 (11r-16r)
Bernharðs leiðsla
Titill í handriti

Hér byrjast Bernhardi leiðsla

Efnisorð
4 (16v-17r)
Ævintýr um stúlku er gaf sig djöflinum
Titill í handriti

Ævintýr um eina stúlku er gaf sig djöflinum

Efnisorð
5 (17v-19r)
Fáheyrður atburður
Titill í handriti

Einn fáheyrður atburður

6 (19r-23v)
Gullasni
Titill í handriti

Apuleius skrifar eina dæmisögu í sinni fjórðu og fimmtu bók, sem hann kallar Gullasna, sohljóðandi

Efnisorð
7 (24r-24r)
Furður
Titill í handriti

Einn tilbu[r]ður sem skeði 1570

Efnisorð
8 (24v-24v)
Æviskeið mannsins
Titill í handriti

Um aldurdóm mannsins

9 (25r-56v)
Eftirtakanlegar smáhistoríur
Titill í handriti

Nokkrar eftirtakanlegar smáhistoríur samantíndar til fróðleiks 1783

Athugasemd

94 sögur

Efnisorð
10 (57r-103v)
Spakmæli heiðinna manna og spekinga
Titill í handriti

Nokkur spakmæli heiðinna manna og vísdómsfullra spekinga saman hent úr grískum og latínskum bókum

Skrifaraklausa

Ei hef ég séð meir af þessari bók og er það inntakið úr 12 hennar fyrstu kapítulum, en hún hefur inni að halda 38 kapítula. Bókin er saman tekin úr grískum og latínskum sagnameisturum af Hans Hanssyni Skonning ([neðanmáls með annarri hendi og vísað upp:] í hans Collegio Philosophorum) byg[g]jandi til Aarhus anno 1636. Er svo þetta stykki endurklórað á Arney árið 1791 af Ólafi Jónssyni. (103v)

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír

Vatnsmerki

Blaðfjöldi
ii + 104 blöð (160 mm x 98 mm). Autt blað: 104
Tölusetning blaða
Yngri blaðsíðumerking 1-111 (2r-57r) á rektósíðum
Skrifarar og skrift
Ein hönd ; Skrifari:

Ólafur Jónsson í Arney.

Skreytingar

Upphafsstafir á stöku stað ögn skreyttir

Spássíugreinar og aðrar viðbætur
  • Á blaði 1v er málsháttur: Blindur er bóklaus maður
  • Á fremra saurblaði 2r er styttur titill handritsins: Sagna-pési

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland 1780-1791
Ferill

Úr safni Jón Árnason, bókavarðar

Eigandi handrits: Þorvaldur Sívertsen í Hrappsey (fremra saurblað 1r)

Aðföng

Alþingi keypti handrita- og bókasafn Jóns Sigurðssonar árið 1878. Safnið var afhent Landsbókasafni að honum látnum, en hann lést 7. desember 1879. Það komst í hendur safnsins árið 1881 er það var flutt í Alþingishúsið.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Eiríkur Þormóðsson lagfærði 27. október 2009Handritaskrá, 2. b. ; Sagnanet 1. júlí 1999
Viðgerðarsaga

Athugað 1999

gömul viðgerð

Notaskrá

Höfundur: Bekker-Nielsen, Hans, Widding, Ole
Titill: Mediaeval studies, A debate of the body and the soul in Old Norse literature
Umfang: s. 271-289
Lýsigögn
×

Lýsigögn