Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

JS 393 8vo

Samtíningur ; Ísland, 1800-1820

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-14r)
Málshættir
Titill í handriti

Málshættir eftir stafrófsröð, skrifað 1816

Efnisorð
2 (14v)
Fróðleikur
Titill í handriti

Þar eru tröll og þurs[ar] verstir þjóða skaði ...

Athugasemd

Án titils

3 (15r-29v)
Spurningar út úr ritningunni
Titill í handriti

Hér skrifast nokkrar spurningar til fróðleiks

Skrifaraklausa

Aftan við á blaði 29v: Endir þessara spurninga útdregnar úr heilagri ritningu skrifaðar af J.Jónssyni

Athugasemd

Úr spurningakveri Micael Saxos (samanber efnisyfirlit á femra saurblaði 2v)

4 (31r-42v)
Spurningar út úr ritningunni
Titill í handriti

gefa að sjúga. Hvort er guðs rétt og eiginlegt nafn. ...

Athugasemd

Efst á blaði: Um guðs nafn

Spurningar og svör úr ritningunni dregnar úr spurningakveri Micael Saxos (samanber efnisyfirlit á fremra saurblaði)

Óheilt

Efnisorð
5 (44r-48r)
Sjö sofenda saga
Titill í handriti

Hér skrifast ævi[n]týr af 7 sofendum

Efnisorð
6 (48r)
Vísa
Titill í handriti

Ein gáta

Upphaf

Að austan komu ráð fyrir rýgi

Athugasemd

Vísa

Efnisorð
7 (48v)
Kvæði
Upphaf

[Ó] hvað oft verð eg orðlaus hér ...

Lagboði

[...] borg er vor

Athugasemd

Efst á blaði hefur verið límt að hluta yfir lagboða

Án titils

8 (48v)
Vísa
Titill í handriti

Byrði synda og blóðug lýti

Skrifaraklausa

Aftan við er ýmislegt krot (48v)

Athugasemd

Án titils

Efnisorð
9 (50r-51v)
Tíðavísur
Titill í handriti

Gæfilegur glatt og títt

Upphaf

Gæfilegur glatt og títt ...

Athugasemd

Fyrsta heila er.

Fyrir árið 1767

Brot

Efnisorð
10 (52r-53v)
Kvæði
Titill í handriti

Eitt kvæði um tófuna og hanann

Upphaf

Tófa tölti um stræti ...

Athugasemd

Í handritum ýmist eignað Hallgrími Péturssyni, Jóni Guðmundssyni lærða eða Páli Vídalín

11 (53v-68v)
Ævintýri
Titill í handriti

Eitt ævintýr

Upphaf

Á dögum Christians kóngs þess fjórða ...

Efnisorð
12 (69r-71r)
Baðstofusálmur
Titill í handriti

Baðstofupsálmur kveðinn af Halldóri Jónssyni

Upphaf

Lof útbreiði lukku pési ...

13 (71r-79r)
Lífsleiðing
Titill í handriti

Eitt kvæði sem kallast Lífsleiðing kveðið af Guðmundi sáluga Bergþórssyni

Upphaf

Dægra stytting skemmta skal ...

14 (79r-105v)
Um afgang þeirra heilögu píslarvotta
Titill í handriti

Hér skrifast nokkuð um afgang þeirra heilögu píslarvotta hverra messudagar í voru rími og almanökum skrifaðir standa

Efnisorð
15 (105v-110r)
Mánuðir ársins
Titill í handriti

Um mánuði ársins og þeirra nöfn

Efnisorð
15.1 (109r-110r)
Viðbætir
Athugasemd

Ennú kann hér að viðbætast að einn dagur meðal vor inndeilist í 24 tíma ...

Nöfn á blaði (110v)

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír

Vatnsmerki

Blaðfjöldi
ii + 110 + i blöð (163 mm x 100 mm) Auð innskotsblöð: 30, 33, 40, 43 og 49
Umbrot
Griporð víða
Skrifarar og skrift
Ýmsar hendur ; Skrifari:

J. Jónss. (15r-29v)

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Auð innskotsblöð sett inn þar sem vantar í handritið

Fremra saurblað 2 titill og efnisyfirlit með hendi Páls Pálssonar stúdents

Handritið er samsett

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland [1800-1820?]
Ferill

Úr safni Jón Árnason, bókavarðar

Aðföng

Alþingi keypti handrita- og bókasafn Jóns Sigurðssonar árið 1878. Safnið var afhent Landsbókasafni að honum látnum, en hann lést 7. desember 1879. Það komst í hendur safnsins árið 1881 er það var flutt í Alþingishúsið.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Blöð handrits voru ekki lesin saman

Sigrún Guðjónsdóttir lagaði skráningu, 26. apríl 2010 ; Handritaskrá, 2. b. ; Sagnanet 30. mars 2001

Viðgerðarsaga

Athugað 2001

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn