Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

JS 264 4to

Kvæðasafn Ólafs Jónssonar ; Ísland, 1740

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-100r)
Kvæðabók
Titill í handriti

Kvæðabók séra Ólafs Jónssonar á Söndum

Notaskrá

Íslenskar gátur og skemmtanir, III

Jón Þorkelsson: Digtningen, bls. 108, 126, 456, 458

Páll Eggert Ólason: Menn og menntir, IV

Athugasemd

Vantar framan á handritið

Með hendi svipaðri Péturs Jónssonar í Svefneyjum

2 (100r-106r)
Foreyðsla Jerúsalem
Titill í handriti

Hér fylgja rímur um foreyðslu borgarinnar Jerúsalem

Efnisorð
3 (106v-110v)
Kaupmannabragur
Titill í handriti

Einn kveðlingur sem kallast Kaupmannabragur

Athugasemd

Brot

Með annarri hendi

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír.

Blaðfjöldi
110 blöð (171 mm x 145 mm) .
Tölusetning blaða

Leyfar að upprunalegri blaðmerkingu má sjá víða.

Handrit var blaðmerkt fyrir viðgerð og er sú blaðmerking nú föst í handriti.

Röðun blaða reyndist vera röng í handritinu og var leiðrétt þegar handritið var viðgert. Sú blaðmerking er því röng á bl. 46r-65r.

Handrit blaðmerkt að nýju árið 2011 frá bl. 46r-65r.

Kveraskipan

Nítján kver.

  • Kver I: blöð 1-4, 2 tvinn.
  • Kver II: blöð 5-6, 2 stök blöð.
  • Kver III: blöð 7-14, 4 tvinn.
  • Kver IV: blöð 15-22, 4 tvinn.
  • Kver V: blöð 23-29, 3 tvinn, 1 stakt blað.
  • Kver VI: blöð 30-37, 4 tvinn.
  • Kver VII: blöð 38-43, 3 tvinn.
  • Kver VIII: blöð 44-52, 4 tvinn.
  • Kver IX: blöð 53-59, 4 tvinn.
  • Kver X: blöð 60-68, 4 tvinn, 1 stakt blað.
  • Kver XI: blöð 69-76, 4 tvinn.
  • Kver XII: blöð 77-78, 1 tvinn.
  • Kver XIII: blöð 79-82, 2 tvinn.
  • Kver XIV: blöð 83-88, 2 tvinn, 2 stök blöð.
  • Kver XV: blöð 89-96, 4 tvinn.
  • Kver XVI: blöð 97-100, 2 tvinn.
  • Kver XVII: blöð 101-104, 2 tvinn.
  • Kver XVIII: blöð 105-108, 2 tvinn.
  • Kver XIX: blöð 109-110, 1 tvinn.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er 147-152 mm x 127-131 mm.
  • Línufjöldi er 23-30.
  • Griporð víðast hvar.

Skrifarar og skrift
Tvær hendur, ein hönd að mestu ; skrifarar:

I. 1r-106r: Pétur Jónsson?

II. 106v-110v: óþekktur skrifari.

Skreytingar

Upphafsstafir með miklu pennadregnu skrauti sem er samsett úr plöntuformum á bl. 2v, 5r, 6r, 7r, 9r, 11v, 12r, 13r, 15r, 18r, 20r, 21v, 25r, 26r, 28v, 29v-30v, 32r-35r, 36r, 37r, 38v-40v, 41r, 42v, 43r-43v, 44v, 45r, 46r-48r, 49r, 50v-55r, 56r-58v, 59v, 60v-62v, 63v-65r, 66r-73r, 74v, 76r-78v, 80v-81r, 82r-84r, 93r, 96v, 97v, 98v, 100v og 106v.

Skrautbekkur á kaflaskilum á bl. 32r.

Skrautbekkur við upphaf texta á bl. 20v, 63v, 66r og 69v.

Bókahnútar mjög víða, sjá t.d. bl. 2v, 8r og 106r.

Flúr kemur upp úr stöfum í megintexta á bl. 26v.

Skreyting víða við eða umhverfis griporð, sjá t.d. bl. 24r, 41r og 76r.

Nótur
Í handritinu eru 17 sálmar með nótum:
  • Enn vil ég einu sinni (6r)
  • Mér væri skyldugt að minnast á þrátt (10r-10v)
  • Hress upp þinn hug (11v)
  • Alleina til guðs set trausta trú (12r)
  • Upplíttu sál mín, og umsjá þig vel (19r)
  • Ó Jesú elsku hreinn (38r)
  • Dýr fæðingin, drottins vors (39v)
  • Minn guð, minn guð mundu til mín (43v)
  • Þig bið ég þrátt (46r)
  • Hug minn hef ég til þín (47r)
  • Framorðið er og meir en mál (58v)
  • Mikils ætti ég aumur að akta (59v)
  • Sterkur himnanna stýrir (62v)
  • Göfgum góðfúslega guð á alla vega (63v)
  • Ó herra guð mín heilsa er rýr (66r)
  • Syng mín sál með glaðværð góðri (67r)
  • Heyr mig mín sál (73r)
  • Auk þess eru nótnastrengir við sálmana Gaumgæfið kristnir og gefið til hljóð (48r-48v) og Heyr þú oss himnum á (52r)
Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Seinni tíma krass á bl. 49v og 51v.
  • Nafn eiganda á aftara spjaldblaði.
  • Viðgerðarblöð á milli bl. 6v og 7r; 27v og 28r; 67v og 86r; 88v og 89r.

Band

Band frá ca. 1740-1840 (182 mm x 147 mm x 23 mm).

Skrautþrykkt skinnband á tréspjöldum.

Slitið við kjölkraga.

Skrifað á spjaldblöð.

Handritið var leyst úr bandi og viðgert af ÁJ í nóvember 1991.

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland 1740.
Ferill

Steindór Jónsson Hafnardal átti þetta handrit.

Jón Sigurðsson fékk þetta handrit frá Sighvati Grímssyni Borgfirðingi 10. október 1870.

Aðföng

Alþingi keypti handrita- og bókasafn Jóns Sigurðssonar árið 1878. Safnið var afhent Landsbókasafni að honum látnum, en hann lést 7. desember 1879. Það komst í hendur safnsins árið 1881 er það var flutt í Alþingishúsið.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 2. bindi, bls. 540-541.

Guðrún Laufey Guðmundsdóttir bætti við skráninguna 12. janúar 2019; Sigríður Hjördís Jörundsdóttir skráði 4. -8. nóvember 2011 ; Eva Kamilla Einarsdóttir frumskráði, 10. júní 2011 ; Handritaskrá, 2. b. ; Átaksverkefni 2011.
Viðgerðarsaga
Handritið var leyst úr bandi og viðgert af ÁJ í nóvember 1991.

Notaskrá

Titill: Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins
Ritstjóri / Útgefandi: Páll Eggert Ólason
Umfang: I-III
Lýsigögn
×

Lýsigögn