„Ljóðmæli séra Ólafs á Söndum“
Íslenskar gátur og skemmtanir, III
Páll Eggert Ólason: Menn og menntir, IV
Jón Þorkelsson: Digtningen på Island s. 108, 126, 456, 458
„Endir á bókinni 1727 (172v)“
Nokkur blöð vantar í handritið
„Nokkur kvæði þess fróma manns Guðmundar sáluga Ólafssonar“
Rektósíður blaðmerktar 1-168 (líkast til upprunalegt).
Handrit blaðmerkt með blýanti fyrir myndatöku.
I. 1r-45v: Óþekktur skrifari
I. 45v-172v: Óþekktur skrifari
Upphafsstafir á stöku stað, ögn skreyttir.
Bókahnútur á bl. 139r.
Griporð víða skreytt. Þær skreytingar víða skertar vegna afskurðar.
Band frá 1727-1830 (196 mm x 162 mm x 32 mm).
Bókaspjöld úr pappa klædd áþrykktum pappír með leður hornum og kili.
Alþingi keypti handrita- og bókasafn Jóns Sigurðssonar árið 1878. Safnið var afhent Landsbókasafni að honum látnum, en hann lést 7. desember 1879. Það komst í hendur safnsins árið 1881 er það var flutt í Alþingishúsið.